156. löggjafarþing — 53. fundur,  4. júní 2025.

framkvæmd tillagna OECD um úrbætur á regluverki í byggingariðnaði og ferðaþjónustu.

426. mál
[15:39]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Það er ástæða til að taka undir þessa beiðni frá hv. þm. Bergþóri Ólasyni. Það er líka ástæða til að ræða aðeins verklagið í nefndinni, en ítrekað förum við mjög fram úr dagskrá. Við höfum núna á undanförnum vikum hafið fundi klukkan átta að morgni og við vorum á fundi allan föstudaginn frá morgni til kvölds, þannig að það hefur ekki skort á vilja okkar í minni hlutanum til að taka þátt í þeirri vinnu. En það gerist einnig ítrekað að svo margir gestir eru boðaðir á fund nefndarinnar að aldrei tekst að tæma dagskrána. Það er verið að senda fólk heim. Það er auðvitað mikill dónaskapur gagnvart gestum. Menn hafa líka sína dagskrá til að vinna eftir. Á þetta hefur ítrekað verið bent, virðulegur forseti, á vettvangi nefndarinnar en lítið hlustað á rök okkar fyrir því að bæta vinnubrögðin.