156. löggjafarþing — 53. fundur,  4. júní 2025.

framkvæmd tillagna OECD um úrbætur á regluverki í byggingariðnaði og ferðaþjónustu.

426. mál
[15:42]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Bara eitt orð varðandi starfið í nefndinni. Ég leyfi mér að fullyrða að það hafi næstum því á hverjum fundi núna um allnokkra hríð verið óskað eftir auknum fyrirsjáanleika. Það snýr ekki að því að þrengja eitthvað að störfum nefndarinnar eða neitt í þá veruna. Það er bara beinlínis gert ráð fyrir því í starfsreglum fastanefnda að það sé skipulag um með hvaða hætti og hvenær mál koma inn til vinnslu í nefnd, hvenær er áætlað að afgreiða þau út og þar fram eftir götunum. Nú um stundir erum við í algeru myrkri og ég bara veit að það er ekki einfalt verk sem hv. þm. Sigurjón Þórðarson er með í fanginu að skipuleggja störf þessarar nefndar. Umfangið er þess eðlis. Þess vegna hef ég verið að kalla eftir því að við fáum aukinn fyrirsjáanleika, því það eru fleiri mál sem eru eflaust áform um að vinna frekar í nefndinni heldur en veiðigjaldamálið. Ég vil bara halda þessu til haga. Það getur ekki komið hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni, formanni atvinnuveganefndar, á óvart að þetta sé ávarpað hér í ljósi þess að þetta hefur verið rætt jafn oft og raunin er á nefndarfundum.