156. löggjafarþing — 54. fundur,  5. júní 2025.

heimild Alþingis til veitingar ríkisborgararéttar.

[10:31]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Við höfum fengið staðfest, bæði í gögnum og opinberum viðtölum, að formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, hv. þm. Víðir Reynisson, hafi lekið trúnaðarupplýsingum um meðferð máls hjá allsherjar- og menntamálanefnd til Útlendingastofnunar með það að markmiði að hafa áhrif á ákvörðun stofnunarinnar í máli einstaklings sem fengið hafði synjun á umsókn sinni um vernd á tveimur stjórnsýslustigum. Þetta gerði hann án samráðs við nefndina og án þess að fyrir lægi samþykkt Alþingis um veitingu ríkisborgararéttar. Með öðrum orðum fannst hv. þingmanni að lögin ættu ekki að gilda um þennan einstakling og hafði því pólitísk og ólögmæt afskipti af málinu svo að niðurstaðan yrði honum þóknanleg. Viðbrögð Útlendingastofnunar voru að stöðva framkvæmdina eingöngu fyrir þennan tiltekna einstakling sem var formanni nefndarinnar þóknanlegur en ekki aðra umsækjenda um ríkisborgararétt sem til stendur að vísa úr landi. Það er eðlilegt að spurt sé hver ræður hér för. Kerfið sem við höfum byggt upp áratugum saman byggist á lögum og sjálfstæði stjórnvalda. Þegar einstakir þingmenn í meiri hluta ríkisstjórnarinnar telja sér heimilt að grípa fram fyrir hendur kerfisins í krafti stöðu sinnar þá er það ekki aðeins óboðlegt heldur grefur það undan trausti á kerfinu, jafnræði umsækjenda og lögmæti ákvarðana.

Því spyr ég hæstv. forsætisráðherra: Hvernig sér hún fyrir sér að ríkisstofnanir geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu ef þeim er gert að bregðast við ólögmætum gagnalekum þingmanna? Hver er afstaða forsætisráðherra til þess að þingmaður taki einhliða ákvörðun um að hafa áhrif á framkvæmd réttmætrar stjórnvaldsákvörðunar?