156. löggjafarþing — 54. fundur,  5. júní 2025.

heimild Alþingis til veitingar ríkisborgararéttar.

[10:33]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Hér eru mjög stór orð látin falla um ólögmætan gagnaleka. Um hvað snýst þetta mál í grunninn? Hv. þm. Víðir Reynisson er ekki að krefjast, er ekki að biðja um nokkurn skapaðan hlut, hann er að upplýsa um stöðu sem upp er komin. Útlendingastofnun og ríkislögreglustjóri geta gert við þær upplýsingar það sem þær stofnanir vilja gera við þær upplýsingar. Engir eftirmálar yrðu af því. Það er sjálfstæð ákvörðun þessara stofnana að bregðast við þegar þær átta sig á því að mögulega standi til að flytja af landi brott barn sem annars væri mjög líklega að fá, eftir samþykkt Alþingis sem stendur auðvitað upp á okkur hér inni að framkvæma, ríkisborgararétt og þurfa svo síðar að horfa upp á það að viðkomandi barn kæmi aftur til landsins. Þetta er hin almenna skynsemi í málinu. Það stóð til að flytja á brott einstakling sem stendur til að veita ríkisborgararétt. Við getum alveg haft skoðanir á veitingu ríkisborgararéttar, hvort Alþingi eigi yfir höfuð að veita ríkisborgararétt. Þessi skoðun er ný, finnst mér, frá hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur, að hér eigi aldrei, nær aldrei, að veita nokkrum manni ríkisborgararétt í gegnum Alþingi. Hún sat hér í ríkisstjórn í langan tíma og Sjálfstæðisflokkurinn hefur setið í ríkisstjórn meiri hluta lýðveldistímans sem þessi lög hafa verið til staðar. Tökum þá umræðuna um það ef fólk vill ekki að Alþingi veiti ríkisborgararétt. En í þessu tilviki er þetta upplýsingagjöf. Ég átta mig ekki á því hvernig þetta getur verið gagnaleki. Þetta er ekki krafa. Þetta er ekki beiðni. Þetta er ekki valdbeiting. Útlendingastofnun og ríkislögreglustjóri geta gert við þessar upplýsingar það sem þau vilja gera. Í þessu tilviki gef ég mér það, því að ég veit ekki meira um málið en hv. þingmaður, að þeim hafi þótt óskynsamlegt að fara í þessa brottvísun vitandi að þetta stæði til.