heimild Alþingis til veitingar ríkisborgararéttar.
Frú forseti. Hér er látið eins og sú ákvörðun, sem virðist liggja í loftinu, og var verið að upplýsa um, sé einvörðungu ákvörðun umrædds hv. þingmanns. Það er undirnefnd að störfum þar sem sitja þrír þingmenn, reyndar bæði í minni hluta og meiri hluta, þar sem farið var yfir þessi mál. Hér er einfaldlega verið að upplýsa um þá stöðu. Og ég segi bara aftur það sem ég sagði hér áðan: Það er Útlendingastofnun sjálf sem ákvað að aðhafast eitthvað í þessu máli og vitnar í því samhengi í heimild sem þau hafa. Þau þurftu ekkert að bregðast við þessum upplýsingum. Hvaða lög hafa verið brotin hérna? Ég átta mig ekki á því. Ekki eru það stjórnsýslulög því að þau eiga hvorki við um Alþingi né alþingismenn. Hvaða trúnað er verið að rjúfa? Ég átta mig ekki almennilega á því heldur. Ég skil ekki í hvaða tilviki það þykir ekki bara fullkomlega eðlilegt að upplýst sé um framgang mála þegar til stendur að fara í kostnaðarsama brottvísun sem er þá bæði sóun á skattfé, ef þetta stendur til, og ill meðferð á einstaklingi að mínu mati. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)