156. löggjafarþing — 54. fundur,  5. júní 2025.

störf ríkisstjórnarinnar.

[10:42]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka fyrir fyrirspurnina. Um er að ræða breytingu, já, sem bindur þróun þessara greiðslna við launavísitölu og kemur í veg fyrir að kjaragliðnun þessa hóps, oft á tíðum hóps sem er launalægsti hópurinn í landinu, aukist. Það er nú 105.000 kr. munur á lægstu launum í landinu og því sem er greitt þarna út. Það er ekki einu sinni verið að tala um að minnka það bil. Það er verið að tala um að stoppa þá gliðnun. Hér hafa margar ræður verið haldnar í þessum sal af alls konar fólki um kjör þessa hóps. Það hefur oft verið vísað til þess að í núverandi lögum er meira að segja gert ráð fyrir að það eigi að passa upp á þessa gliðnun en þau standa ekki. Hér, já, er um pólitíska forgangsröðun að ræða, og af hverju kalla ég þetta pólitíska forgangsröðun? Vegna þess það er búið að fjármagna það. Það er búið að fjármagna þetta. Þetta stendur í fjármálaáætlun, sömu fjármálaáætlun og lokar gatinu sem síðasta ríkisstjórn skildi eftir sig, árið 2027, ári fyrr en fyrri ríkisstjórn ætlaði að gera það. Þannig að já, auðvitað er peningur sem fer í það að tryggja það að lægst launuðu einstaklingarnir í landinu sitji ekki meira eftir, kemur í veg fyrir að þú getir eytt peningum í annað. Því áttum við okkur á. Þannig erum við að forgangsraða. Ég get því ekki verið að ræða hér í smáatriðum um nákvæmlega hvað fór fram í fjármálaráðuneytinu þegar þetta minnisblað kom út. Ég tel að hæstv. fjármálaráðherra sjálfur ætti að svara fyrir það. Ég veit hins vegar hvað hæstv. fjármálaráðherra gerði í ríkisstjórn. Hann samþykkti þetta frumvarp og ég get ekki séð annað en að í þessu minnisblaði sé einna helst verið að leggja áherslu á það að já, það er kostnaður sem þessu fylgir, það þarf að passa upp á hann, þarf að fjármagna hann og það erum við að gera. Þessi ríkisstjórn er samstiga. Það liggur alveg fyrir. Þetta var samþykkt einróma út úr ríkisstjórn og við erum stolt af þessu frumvarpi. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)