156. löggjafarþing — 54. fundur,  5. júní 2025.

störf ríkisstjórnarinnar.

[10:45]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Báðir einstaklingar eru eðlilega að segja satt, enda hefur hæstv. atvinnuvegaráðherra komið fram í fréttum og lýst því yfir að það standi ekki til að minnka daglegt magn. Þetta hefur komið fram. Það sem sat eftir í greinargerð var umfjöllun um að það hefði komið til greina að fara þá leið að minnka daglegt magn. Það var tekin ákvörðun í ríkisstjórn um að gera það ekki með þeim hætti. Mér finnst ekkert óeðlilegt við það að nefndin hafi upplýsingar um hvað hafi verið rætt í þessu samhengi vegna þess að það er heldur ekkert óeðlilegt við nefndaryfirferð að alls konar valkostum sé velt upp, sérstaklega ef fólki finnst þetta vond hugmynd eða hefði viljað gera þetta með öðrum hætti en kemur fram í frumvarpinu. En eins og frumvarpið stendur núna þá stendur ríkisstjórnin á bak við það, það er vilji til þess að rýmka fyrir heimildum og það verði þá tekið af heimildum næstu ára til að tryggja sjálfbærni veiðanna. Atvinnuvegaráðherra hefur verið mjög skýr á því að það stendur ekki til að fara aðra leið en þessi valkostur er settur þarna inn til umræðu.