156. löggjafarþing — 54. fundur,  5. júní 2025.

stækkun verkmenntaskóla.

[10:48]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég vil byrja á því að benda á að það sem kemur fram í fjármálaáætlun, um 300 milljónir, er bara hliðrun á fjármunum sem fara yfir á næsta ár. Það stendur ekki til að draga úr því að framkvæmdir fari af stað. Staðan er sú í dag að við erum að forgangsraða og við munum klára þá forgangsröðun mjög fljótlega. Við vitum, eins og kom fram hjá hv. þingmanni, að það er þörf á að byggja við framhaldsskóla og bæta húsnæðiskostinn. En þetta er uppsafnaður vandi frá fyrri ríkisstjórn og við erum hreinlega að kortleggja hvar við þurfum að byrja fyrst. Við eigum að forgangsraða í réttri röð. Þetta er bara vinna sem við erum að klára. Það er alveg á hreinu að við munum ekki draga lappirnar í því að koma þessu að.

Og að tala um verkmenntaskóla — það er einmitt mín hugsjón að efla iðnnám. Ég kem úr þeim geira og ég hef alltaf sagt að við eigum að sjá til þess að vel sé staðið að iðnnámi. Við munum líka tryggja að þeir sem vilja komast inn í framhaldsskóla komist þangað inn. Við erum að vinna að því fullum fetum að tryggja að enginn verði skilinn eftir þó að það sé ótrúleg áskorun af því að þetta er stór hópur sem er að koma inn í skólakerfið. Við munum reyna að sjá til þess að allir komist inn þó að þeir fái kannski ekki fyrsta val. Og við erum líka að forgangsraða, og þar erum við bara á síðustu metrunum, í því að byggja. En við verðum að átta okkur á því að ríkið kemur með 60% fjármagn og sveitarfélögin með 40%. Við erum einmitt að tala við sveitarfélögin. Hvaða sveitarfélög eru tilbúin til að byrja með?