stækkun verkmenntaskóla.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég verð bara að segja alveg eins og er að þessar 300 milljónir eru ekki það sem skiptir máli. Það skiptir engu máli, þessar 300 milljónir, um það hvort við getum byrjað í dag eða á morgun. Það eina sem skiptir máli er það hvernig við eigum að forgangsraða og hverjir eru tilbúnir. Við erum tilbúin. Við erum að ganga frá síðustu forgangsröðuninni og um leið og það er búið förum við af stað. Svo er það bara spurning hvenær sveitarfélögin eru tilbúin. En ég vil bara benda á að við erum að fara að gera það sem þið voruð að skrifa undir í síðustu ríkisstjórn og framkvæmduð ekki. Þið skrifuðuð undir en það skeði ekkert. (Gripið fram í.) Við erum hreinlega að fara í það, (Forseti hringir.) við erum á lokasprettinum við að klára forgangsröðunina og bara fylgstu með, við munum fara af stað. (Gripið fram í.)
(Forseti (ÞSv): Ég bið hv. þingmenn og hæstv. ráðherra að efna ekki til samtala í þingsal og að muna ávallt eftir því að ávarpa forseta.)