samstarf innan ríkisstjórnarinnar.
Frú forseti. Ráðherrum ríkisstjórnarinnar hefur orðið tíðrætt um það hversu mikil samstaða sé á milli ríkisstjórnarflokkanna og svo það hversu styrk verkstjórn sé nú um það sem ríkisstjórnin aðhefst. Ég vil því við þetta tækifæri eiga orðastað við hæstv. forsætisráðherra, verkstjóra ríkisstjórnarinnar, um þá stöðu sem nú blasir við landsmönnum. Tökum dæmi. Hér er vonum seinna rætt mál er varðar strandveiðar og er hent inn í þingið nokkrum dögum fyrir áætluð þinglok. Hæstv. atvinnuvegaráðherra hefur lýst því að ein þeirra leiða sem komi til greina til að ná utan um umfang veiðanna sé að minnka heimilaðan afla innan hvers sóknardags strandveiðibáts. Þingmenn Flokks fólksins hafa lýst þeim áformum sem mistökum og segja að umræddur texti hafi gleymst í greinargerð frumvarpsins. Hvernig getur það gerst? Hæstv. atvinnuvegaráðherra tók af allan vafa þegar hún mælti fyrir málinu og sagði að það að minnka heimilaðan afla hvern veiðidag koma til skoðunar. Ég var í salnum, ég heyrði orð hæstv. ráðherra. Svo mörg voru þau orð.
Annað atriði sem hefur birst okkur er hörð gagnrýni, svo vægt sé til orða tekið, frá hæstv. fjármálaráðherra á þingmál sem bindur þróun bóta við launavísitölu. Gagnrýni fjármálaráðuneytisins fyrir hönd hæstv. ráðherra á þetta mál Flokks fólksins er með þeim hætti að vart verður séð að Viðreisn geti stutt málið yfir höfuð. Svo eru það launamál hv. þm. Jóns Gnarrs sem er annað sem flaut upp í gær og var tekið af dagskrá. Og áfram mætti telja. Þegar horft er til þess að eina pólitíska frumvarpið sem ríkisstjórnin hefur klárað og fengið samþykkt sem lög á þessu þingi og er undan rótum ríkisstjórnarinnar runnið er málið er varðar sölu Íslandsbanka, þá verð ég að spyrja hæstv. forsætisráðherra: Eru þetta virkilega eftirtekjur verkstjórnarinnar eftir allar yfirlýsingarnar um að hér væri allt undir nýrri stjórn festu og yfirvegunar? Og lýsa þessi mál sem ég nefndi hér á undan mikilli samstöðu ríkisstjórnarflokkanna nú um stundir?