samstarf innan ríkisstjórnarinnar.
Frú forseti. Hér var farið yfir svo sem ýmislegt, ég veit ekki í hversu miklum smáatriðum ég á að svara öllu. Bara svo það sé alveg á hreinu: Við vitum alveg hvað stendur í breytingargreinunum um strandveiðarnar. Það getur alls konar staðið í greinargerð en þar er verið að leggja til ákveðna aðferð og það er sú aðferð sem var samþykkt í ríkisstjórn. Það fer ekkert á milli mála. Það skiptir ekki máli hversu oft er komið hingað upp til að reyna að hafa áhrif á þann málflutning, að það sé eitthvað annað í gangi, það eru lögin eins og þau eru lögð fram. Síðan má vera með alls konar umræðupunkta. Þetta er það sem var samþykkt. Við skulum ekki láta eins og það sé eitthvað annað hér í gangi. Það stendur ekki til að minnka daglegan afla. Ég ætla bara að fullyrða það. Það stendur ekki til að gera það. Það er ekki það sem frumvarpið snýst um.
Ég svaraði áðan til um bindinguna við launavísitölu, en varðandi verkstjórnina: Ég get alveg lýst því hér yfir að ég hef orðið fyrir vonbrigðum með að það hefur verið hægagangur hérna í þinginu. Það hefur ekki verið hægagangur hjá ríkisstjórninni. Við skiluðum 90% þeirra mála sem voru á þingmálaskránni hér inn fyrir tilsettan tíma og það hefur gengið ágætlega í nefndunum en það var ákveðið að eyða tveimur dögum í 1. umræðu strandveiða, það var ákveðið að eyða næstum heilli viku í 1. umræðu veiðigjalda. Þetta er auðvitað bara val hjá þinginu og ég held að við hljótum að sjá að það er líklega meiri samstaða í ríkisstjórninni en hér inni í þinginu milli minni hluta og meiri hluta og það er umhugsunarvert hvernig er unnið. Þetta er umhugsunarvert og ég segi þetta ekki bara vegna þess að ég er í meiri hluta. Ég hef áhyggjur af framleiðni og vinnu þessa þings og í hvað við eyðum tíma. Fólk veit þetta alveg hér inni. Við vitum alveg af hverju þetta er. Látum ekki eins og þetta sé eitthvað annað en það sem þetta er. Það er skýring á því af hverju við stöndum hér á þessum degi og það er ekki búið að afgreiða fleiri mál en raun ber vitni og það er ekki vegna meiri hlutans.