156. löggjafarþing — 54. fundur,  5. júní 2025.

samstarf innan ríkisstjórnarinnar.

[10:58]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir viðbrögðin eða svörin. Ég vil benda hæstv. forsætisráðherra á það að greinargerð með frumvarpi er lögskýringargagn, hún ætti að vita það. Fyrir okkur sem höfum fylgst með stjórnmálum um tíma virðist núverandi ríkisstjórn hafa komist furðuhratt á þann stað sem sú fyrri skakklappaðist frá á seinna kjörtímabili sínu, þar sem traustið var lítið og samstaðan hverfandi. Eitt enn er mál er varðar íslenskan ríkisborgararétt og stöðuna sem hér er komin upp, sem mig grunar að ekki sé heldur samstaða um í blessaðri ríkisstjórninni. Það getur ekki talist eðlilegt að einstaklingar sem uppfylla ekki skilyrði til hælis og fá synjun um vernd frá tveimur stjórnsýslustigum geti leitað ásjár Alþingis og fengið vernd þannig, nánast með loforði um veitingu ríkisborgararéttar. Hér hefur verið opnað pandórubox með inngripi formanns allsherjarnefndar og jafnvel er talið að viðkomandi hafi brotið stjórnsýslulög með inngripi sínu. Hér er jafnræðis ekki gætt. Er þetta inngrip með stuðningi hæstv. forsætisráðherra, formanns (Forseti hringir.) Jafnaðarmannaflokks Íslands? Ég tel að þjóðin og aðrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt eigi rétt á svörum (Forseti hringir.) við því án undanbragða eða útúrsnúninga.

(Forseti (ÞSv): Forseti beinir því aftur til hv. þingmanna að ræðutími í seinni ræðu er ein mínúta.)