samstarf innan ríkisstjórnarinnar.
Forseti. Það skiptir ekki máli hversu oft það er sagt hér inni að það sé lítil samstaða eða traust í þessari ríkisstjórn, það er ekki rétt, það er bara ekki rétt. Það gengur mjög vel í þessari ríkisstjórn og hún er mjög samstiga. Það má tala um þetta en það breytir ekki raunveruleikanum.
Hvað varðar ríkisborgararétt, er samstaða um þetta í ríkisstjórn? Þetta kemur ekki til umræðu í ríkisstjórn. Ákvörðun um ríkisborgararétt er tekin af Alþingi, ekki af framkvæmdarvaldinu. Þessi ákvörðun kom ekki til umræðu í ríkisstjórn. Það þarf ekki að vera samstaða eða óeining eða mismunandi skoðanir. Þetta varðar ekki ríkisstjórn. (IngD: Ég spurði ekki að því.) Þetta varðar ekki ríkisstjórn. Það sem ég hafði skoðun á hins vegar var hvort hv. þm. Víðir Reynisson hefði lekið gögnum, brotið lög. (IngD: Það var ekki það sem ég spurði um.) Og það tel ég ekki. Það sem liggur alveg fyrir í þessu samhengi er að það hefur lengi verið veittur ríkisborgararéttur með þessum hætti. (IngD: Svaraðu spurningunni.)(Gripið fram í: Útúrsnúningur.) (Gripið fram í: Já.) (Forseti hringir.)
(Forseti (ÞSv): Forsætisráðherra er með orðið. Ég bið þingmenn að gefa hljóð.)
Það hefur lengi verið veittur ríkisborgararéttur með þessum hætti. Ef fólk hér inni kemst að þeirri niðurstöðu eftir þetta vor að það sé afleitt að ríkisborgararéttur sé veittur með þessum hætti þá þarf að taka ákvörðun um það í þessum sal. En það er hægt að fletta því upp, áraraðir aftur í tímann, þar sem fólk er að taka mynd af sér með fólki, sem hefur áður fengið synjun á öðrum stigum, eftir að hafa veitt þeim ríkisborgararétt hér inni. Við skulum ekki láta eins og þetta sé nýtilkomið. Höldum okkur við staðreyndir máls. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)