breytingar á lögum um innritun í framhaldsskóla.
Forseti. Ástand menntamála í landinu er ekki gott eins og þekkt er. Á meðal margra vandamála sem bent hefur verið á í vetur er innritun í framhaldsskóla sem er ekki sanngjörn. Fólk nýtur ekki jafnræðis vegna þess að það er einkunnaverðbólga. Í stað þess að leitast við að laga það vandamál ákveður ríkisstjórnin í raun að gera vandamálið verra. Eins og boðað hefur verið á að draga úr vægi einkunna við innritun í framhaldsskóla eða veita sérstaka heimild til þess. Þetta er gert á grundvelli einhvers konar „woke“-orðasalatshugsjónar í nýja frumvarpinu, að vinna gegn einsleitni í nemendahópi, að allir framhaldsskólar axli ábyrgð á fjölbreyttum nemendahópi. Allt sé þetta gert í ljósi aukinnar umræðu um inngildingu í skólastarfi án þess að það sé skýrt eitthvað frekar. Með öðrum orðum þýðir þetta í raun að það eru alls konar ytri einkenni; kyn, uppruni, fötlun og annað eins, sem á að blanda inn í þetta ferli, m.a. þá, eins og maður skilur þetta, til að breiða yfir þann vanda sem er í grunnskólakerfinu, þ.e. að þessir hópar séu ekki endilega að ná sömu útkomu þar. Í stað þess að ráðast að rót vandans þá á að breiða yfir hann.
Maður vorkennir hálfpartinn sumum talsmönnum þessa frumvarps sem maður finnur að hafa ekki mikla trú á því. En þeir skýla sér á bak við það að þetta sé gert í ljósi 15 ára gamals álits frá umboðsmanni Alþingis. Þegar maður bendir á þessa undarlegu og skrýtnu hugmyndafræðilegu fjölbreytileikamismunun, eða hvað á að kalla þetta, þá segir fólk: Nei, nei, þetta snýst ekki um það. Þetta snýst um álit umboðsmanns Alþingis frá því fyrir 15 árum — en maður sér ekki að fólk hafi séð ástæðu til að bregðast við fyrr en nú.
Það sem mér leikur forvitni á að vita, virðulegur forseti, er álit hæstv. menntamálaráðherra á þessum breytingum, hvort hann ítreki fyrri orð sín um að raunverulega beri að draga úr vægi einkunna við innritun í framhaldsskóla eða ekki. Sú er spurningin: Stendur það til? Er það hugsjón hæstv. menntamálaráðherra að einkunnir eigi að vega minna við innritun í framhaldsskóla? Eða vill hæstv. menntamálaráðherra skýla sér á bak við þetta álit umboðsmanns? Ég efast um það. En spurningin er skýr: Telur hann æskilegt að einkunnir skipti minna máli við innritun í framhaldsskóla?