breytingar á lögum um innritun í framhaldsskóla.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég get bara svarað honum strax. Það er ekki verið að draga úr vægi einkunna. Það er verið að gefa heimild og þessi heimild var til staðar, við erum bara að staðfesta hana í lögin og það var það sem umboðsmaður Alþingis var að biðja um. Mér finnst alveg með ólíkindum að þingmaður komi hingað upp og blandi saman fötluðu fólki og alls konar málefnum í þessa einkunnagjöf og þetta mat inn í skólana. Við erum misleit og ég hef alltaf sagt að það er eitthvað skrýtið við það að við séum með þrjár námsgreinar sem eigi að stjórna einkunnagjöfinni og skólar séu að velja út frá því. Ég vil hafa það þannig að það sé a.m.k. horft til jafnvægis, yfir það hvernig krakkar og unglingar standa sig í námi vegna þess að við eigum ekki að horfa bara á þrjá þætti. Við eigum að horfa á heildarpakkann. Það er það sem við erum að biðja um, að við séum ekki með einsleitan hóp í skólum. Ég get ekki séð að það sé neitt að því. Ég hef ekki orðið var við það. Ég sá viðtal við skólastjóra í tveimur skólum og þeir sjá ekkert athugavert við þetta. Þeim fannst það bara alveg sjálfsagt mál að líta til heildarpakkans og telja sig gera það. Þetta er bara það sem við erum að reyna að koma á, að það sé staðfest í lögum það sem var áður heimilt í reglugerð og það var það sem umboðsmaður Alþingis var að biðja um og við erum bara að staðfesta þetta. Við erum ekki að segja að þar með ætlum við að gjaldfella allar einkunnir. En við erum líka á góðri leið með að fara í nýtt námsmat sem verður miklu heildstæðara og verður miklu yfirgripsmeira og þar getum við fylgst með einstaklingum frá upphafi til enda og gripið inn í strax ef á þarf að halda.