nýsköpun í heilbrigðisþjónustu og einkarekstur.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir að taka þessa mikilvægu umræðu hér í þingsalnum í dag. Við lifum einfaldlega á tímum mjög örra tæknibreytinga og það er undir okkur komið hvar við ætlum að staðsetja okkur í að ná árangri fyrir íslenska þjóð þegar kemur að því að stíga stórhuga skref til að bæta þjónustu við fólk í þessu landi í heilbrigðiskerfinu, minnka biðlista og þar með bæta lífsgæði. Í öðru lagi að létta álag á heilbrigðisstarfsfólki og mæta áskorunum um manneklu, en í þriðja lagi að fara betur með fjármagn á sama tíma.
Heilbrigðiskerfið okkar er ein af mikilvægustu stoðum samfélagsins og við eigum þar frábært fagfólk. Við verðum samt að nýta lausnir miklu betur og tæki til að styðja við það fólk og auka skilvirkni kerfisins og stytta raunverulega bið eftir mikilvægri þjónustu. Mig langar að nýta tækifærið hér í dag og ræða þetta fyrst og fremst út frá tækni, út frá tækifærunum með tækninni, þó að ég geri mér fulla grein fyrir því að það leysir ekki allan vandann sem fyrir framan okkur er. Tæknin skapar þó rými og getu og fjármagn til að gera betur á þeim sviðum þar sem tæknin snertir lítið.
Við eigum hér gott heilbrigðiskerfi, höfum verið að byggja upp nýjan spítala en áskorunum fjölgar bara. Það eru of langir biðlistar, fólk bíður of lengi eftir þjónustu. Mig langar að við getum verið saman stórhuga þegar kemur að heilbrigðiskerfinu. Mig langar að við sjáum það og setjum okkur raunveruleg markmið um að Ísland hafi tæknivæddasta heilbrigðiskerfi í heimi, af því að við getum ekki sett okkur öll markmið þegar kemur að því að bera saman heilbrigðiskerfið við aðrar stærri þjóðir. Það sem Ísland getur þó er að hreyfa sig hratt, nýta smæð okkar til að stórbæta þjónustuna og nýta nýsköpun og einkaframtak. Gervigreindin býður upp á tækifæri sem við sáum ekki fyrir fyrir örfáum árum eða jafnvel mánuðum, bæði með því að bæta greiningar, sérsníða meðferðir og auka alla skilvirkni kerfisins. Gervigreindin getur einfaldlega greint gríðarlegt magn af heilbrigðisgögnum til að finna mynstur, gerir það kleift að greina sjúkdóma á fyrri stigum en hefðbundnar aðferðir til þessa, auk þess sem greiningar geta allar orðið hraðari og nákvæmari.
Við höfum frábær dæmi. Innleiðing Sidekick í heilbrigðiskerfi hefur til að mynda ekki bara bjargað mannslífum á Íslandi heldur minnkað álag og niðurstöður Bandaríkjanna sem hafa verið að nýta þessa íslensku nýsköpun, sem byggir fyrst og fremst á gervigreindartækni, sýna fram á miklu minna álag á bráðamóttökunni sem skapar rými til að sinna þeirri þjónustu sem þar þarf að fara fram. Nýleg skýrsla Evrópusambandsins bendir á að árið 2023 hafi vantað eina milljón heilbrigðisstarfsfólks í öllum aðildarríkjum sambandsins. En skýrslan sýnir líka að sjálfvirknivæðing, nýsköpun, einkaframtak og gervigreind hefði getað komið til móts við 40% af þeirri vöntun, tölurnar eru svo stórar. Við þurfum að horfast í augu við að tæknin sem er í boði í dag, bæði með sjálfvirknivæðingu, fjarlækningum og öðru, mun ekki bara bæta þjónustuna, fara betur með fé og létta á heilbrigðisstarfsfólki heldur er hún einfaldlega nauðsynleg svo við getum mætt eftirspurn og brugðist við þeirri manneklu og aukna álagi sem við stöndum frammi fyrir í kerfinu. Með réttum hvötum og styrkjum og umbótaverkefnum getum við hraðað innleiðingunni og skilað raunverulegum umbótum í kerfinu okkar fyrir sjúklinga.
Við eigum fleiri mögnuð dæmi. Hér í þessum þingsal hefur undanfarið verið rætt mikið um Janus þar sem við sjáum einstaka nýsköpun sem hefur fært fjölda ungs fólks raunveruleg tækifæri til endurhæfingar, sem hefur unnið til alþjóðlegra verðlauna, birt vísindagreinar og þróað stafræn tæki á heimsmælikvarða. Mörg eru dæmin um íslenska nýsköpun sem hefur ekki komist inn um veggi heilbrigðiskerfisins. Það hefur verið reynt að stíga skref í þá átt en veggir kerfisins hafa stundum verið svifaseinir og þungir þó að það hafi að mínu mati margt breyst undanfarið og ég vona að hæstv. ráðherra ætli að hjálpa til við að ýta undir það að vera stórhuga til að mæta þessari manneklu.
Kosningaloforð Samfylkingarinnar voru stór gagnvart heimilislækningum fyrir kosningar. Ég spyr hæstv. ráðherra: Hvaða skref hyggst hæstv. ráðherra taka til að hraða innleiðingu nýsköpunar, innleiða gervigreind og gera stjórnsýsluna móttækilegri fyrir tæknilausnum sem eru úti um allt og eru að slá í gegn um allan heim? Ætlar hæstv. ráðherra að vera stórstíg til að bæta þjónustuna og stytta biðlista og nýta tæknilausnir? Og ætlar hæstv. ráðherra að beita sér fyrir samningum við einkaaðila til að stytta biðlista og láta fé raunverulega fylgja sjúklingum?