nýsköpun í heilbrigðisþjónustu og einkarekstur.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur fyrir að efna til umræðu um sameiginlegt áhugamál okkar, nýsköpun í heilbrigðisþjónustu. Það er mikilvægt málefni sem snertir framtíð og sjálfbærni heilbrigðiskerfisins sem og daglega þjónustu við fólkið í landinu. Heilbrigðiskerfið stendur frammi fyrir stórum áskorunum, m.a. vaxandi eftirspurn eftir þjónustu samfara skorti á starfsfólki. Við því þarf að bregðast, annars vegar með því að hámarka nýtingu fjármuna og virði þjónustu, hins vegar með því að bæta lýðheilsu og freista þess að minnka eða seinka þörf fyrir þjónustu. Í hvoru tveggja er nýsköpun ekki valkostur heldur forsenda. Því er stuðningur við stafræna þróun og hvers kyns nýsköpun sérstakt áherslumál hjá mér.
Ég setti fljótt af stað vinnu um mat á stöðu stafrænna mála í heilbrigðiskerfinu til að við öll fáum yfirsýn og grunn fyrir upplýstari og betri ákvarðanir. Hvaða lausnir munum við nota áfram, hverjar ekki og hvers konar nýjar lausnir þarf? Miðstöð rafrænna lausna hjá embætti landlæknis hefur unnið að bættri skjölun um högun kerfa. Þá eru samtök einkaaðila, eins og SI, SFV og SH með setu í stýrihópi um rafrænar lausnir þar sem verið er að mynda undirhóp sem sinna á nýsköpunarmálum. Þar verður greint hverjar þarfir sprotafyrirtækja og fyrirtækja í þróun eru til að greiða betur fyrir nýsköpun. Líklegt er að útkoman verði að skilgreina þurfi samstarf og ferla betur, betra prófunarumhverfi og að veita þurfi slíkum fyrirtækjum meiri stuðning og upplýsingar. Þetta eru atriði sem komið hafa upp í samtölum mínum við nýsköpunarsamfélagið.
Það er mikilvægt að setja gagnsæjar og skýrar leikreglur, einnig að skilgreina staðla þannig að hægt sé með einfaldari hætti að nýta nýjar stafrænar lausnir í heilbrigðisstofnunum landsins og einnig til að gera fyrirtækjum betur kleift að nálgast erlenda markaði. Til að bregðast við þessu hefur ráðuneytið sett af stað verkefni til að skýra betur þá staðla sem þarf. Ég vil sérstaklega nefna FHIR-staðalinn og til skoðunar eru fleiri staðlar í samráði við Staðlaráð Íslands. Í gangi er einnig undirhópur um gervigreind og nýsköpun og þar verða tillögur gaumgæfðar vandlega. Loks er verið að meta heildstætt hvernig stafrænni þróun verði best fyrir komið. Þá hafa verið haldin lausnamót og nýsköpunarhraðlar í samstarfi við fjölda aðila þar sem raunveruleg vandamál eru kynnt og aðilar taka að sér að leysa með stafrænni nýsköpun.
Hvað varðar Fléttuna sem hv. þingmaður þekkir þá er hæstv. ráðherra nýsköpunar að skoða meira samstarf við heilbrigðisráðuneytið með það að markmiði að styrkirnir nýtist betur en áður var.
Þegar kemur að nýsköpunarverkefnum sem tengjast verkferlum og þjónustu eru margvísleg verkefni í gangi á fjölda staða; fjarvöktun og heimaspítali á Selfossi sem og teymisnálgun á heilsugæslunni á Akureyri, bara til að nefna dæmi. Landspítalinn setti árið 2023 á laggirnar sérstaka nýsköpunareiningu og er auðvelt að sækja um nýsköpunarsamstarf. Einnig hóf fyrsti hópurinn nám í nýsköpun í samstarfi Landspítala við Klak, Háskólinn í Reykjavík og Auðnu til að efla nýsköpunargetu starfsmanna og nýsköpunarmenningu. Notuð eru gervigreind til að lesa röntgenmyndir þar og fleira mætti telja.
Loks má nefna að sú sem hér stendur og hæstv. ráðherra nýsköpunar munu standa saman að árlegu nýsköpunarþingi heilbrigðiskerfisins og verður það fyrsta í haust. Þá er líka til umræðu hvernig styðja megi við stór verkefni með samvinnu ríkis og einkaaðila, á ensku, með leyfi forseta, Public Private Partnership og GovTechAlliance.
Loks vil ég nefna að nýsköpun verður líka að ná til stjórnsýslu og við þurfum m.a. að skoða greiðslumódel og fjármögnun.
Hv. þingmaður nefndi einkarekstur og það er verið að semja við einkaaðila, t.d. um skurðaðgerðir, í því markmiði að stytta biðlista.
Frú forseti. Áhersla er þannig á að skapa móttækilegt umhverfi fyrir nýsköpun og virkja frumkvæði starfsfólks. Margt fleira mætti nefna en tímans vegna er staðar numið.