156. löggjafarþing — 54. fundur,  5. júní 2025.

nýsköpun í heilbrigðisþjónustu og einkarekstur.

[11:21]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég fagna því að fá að taka þátt í þessari umræðu um nýsköpun í heilbrigðisþjónustu. Ég verð að segja að þegar stjórnmálamenn taka sér þetta hugtak í munn, nýsköpun í heilbrigðisþjónustu, þá mætti stundum ætla að það sé einhver bráðavandi, að það sé engin nýsköpun í heilbrigðisþjónustu. En frá mínum bæjardyrum séð hefur heilbrigðisþjónusta verið ein allsherjar- og stórtæk nýsköpun í gegnum árin. Ég held að við höfum aldrei orðið vitni að annarri eins nýsköpun í heilbrigðisþjónustu og við höfum séð á síðustu kannski fimm árum, áratug, jafnvel síðasta ári. Mér finnst mikilvægt að halda því til haga vegna þess að ég ætla ekki að þykjast hafa vit á því hvernig menn eiga að stýra nýsköpun eða koma henni sérstaklega á framfæri. Ég nefni það bara að menn mega ekki horfa fram hjá því að nú þegar er auðvitað mikil nýsköpun.

Ég sjálf sit í hv. velferðarnefnd. Þar er t.d. nú um stundir til umræðu sjúkraskrár sjúklinga. Þau virðast hins vegar flækjast, þessi einföldu mál. Miðað við alla þá nýsköpun og tækni og hátæknilausnir í heilbrigðisþjónustu sem verið er að nýta þá virðist svona mál eins og sjúkraskrár, sem hafa lengi verið á pappír en eru nú komnar á rafrænt form, vera að þvælast fyrir stjórnendum spítala og löggjafanum og stjórnvöldum, t.d. um aðgang að þessum skrám. Þetta er kannski ekki beint það sem tilheyrir nýsköpun í heilbrigðisþjónustu en þó þannig að menn mættu kannski beina sjónum að því að hvernig hægt er að einfalda utanumhald um sjúkraskrár en um leið tryggja aðgengi sjúklinga að sjúkraskrám og jafnframt tryggja verulega eftirlit með aðgangi annarra að sjúkraskrám. Það er margt í þessu. En ég árétta það að menn missi ekki sjónar á þeirri miklu nýsköpun sem er í heilbrigðisþjónustu úti um allan heim og meira að segja líka á Íslandi. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)