156. löggjafarþing — 54. fundur,  5. júní 2025.

nýsköpun í heilbrigðisþjónustu og einkarekstur.

[11:23]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V):

Frú forseti. Mig langar að byrja á því að þakka fyrir þessa góðu umræðu, mér finnst mjög gott að við séum að ræða þessi mál í þessum sal, um nýsköpun og tæknilausnir og hvernig við getum svolítið hugsað út fyrir kassann þegar kemur að þessum mikilvægu viðfangsefnum. Þar undir er auðvitað allt kerfið, við getum talað líka um mönnunarvanda, nýtingu gervigreindar og hvernig við tryggjum þessa grósku sem ég veit að hefur átt sér stað á umliðnum árum og þarf bara að virkja áfram. Ég tek undir orð hv. þm. Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur í þeim efnum. Það er rosalega mikil gerjun og mikil tækifæri í þessum geira. Velferðartækni skiptir máli og skiptir máli að tryggja það, ég veit að það hefur verið unnin mikil forvinna um ýmislegt, líkt og kom fram í máli hæstv. ráðherra og ég hlakka til að fylgjast með þeirri vegferð á næstu árum.

Forseti. Þegar ég var 17 ára þá veiktist ég af áfallastreitu, mjög alvarlegri, og ég þurfti hjálp. Ég bjó á Ísafirði og það kom sálfræðingur á Ísafjörð einu sinni í mánuði á þessum tíma og stundum var ekki flogið. Þá voru góð ráð dýr vegna þess að ég þurfti hjálp. Ég tók upp á því, 17 ára, 18 ára, 19 ára að fljúga oft í mánuði suður á eigin kostnað til að leita mér aðstoðar hjá sálfræðingi. Þetta er dæmi um þennan aðstöðumun sem við vitum að er á milli einstaklinga sem búa úti á landi og búa á höfuðborgarsvæðinu. Í þessu skyni held ég að það sé klárlega hægt að nýta tæknina, nýsköpun og annað til þess að tryggja það að við sitjum öll við sama borð þegar kemur að því að grípa fólk. Ég gæti haldið langar ræður hér um geðheilbrigðisþjónustu, ég ætla að hlífa ykkur við því, en þetta skiptir máli af því að því fyrr sem við grípum einstaklinga og því fyrr sem við náum að tryggja forvirkar aðgerðir, því betra. En fyrst og fremst er verkefnið þetta: Við verðum að tryggja þjónustu óháð búsetu, efnahag eða stöðu að öðru leyti. Pólitískar kreddur um rekstrarform mega ekki að hindra slíka för heldur að hið opinbera nýti fjármagn skynsamlega.