nýsköpun í heilbrigðisþjónustu og einkarekstur.
Virðulegur forseti. Eitt af brýnum verkefnum er að nýsköpun nái til allra heilbrigðisstofnana úti um land því að fjölbreytt heilbrigðisþjónusta í nærumhverfi skiptir einstaklinga og fjölskyldur mjög miklu máli. Þegar veikindi verða, hvort sem um ræðir varanleg veikindi, slys, fötlun eða andleg veikindi og umönnun aldraðra og öryrkja, þá viljum við að þeim þörfum sé mætt sem best í heimabyggð. Fjölþætt heilbrigðisþjónusta nærumhverfinu skiptir öllu máli. Fólk á ekki að þurfa að hrekjast frá sinni heimabyggð sökum veikinda eða aldurs. Það er því mikilvægt að efla sem best hið opinbera heilbrigðiskerfi svo það geti tileinkað sér best nýsköpun og þá miklu framþróun sem virkilega er í heilbrigðiskerfinu og í vísindum og rannsóknum og geti ráðið til sín hæft fólk til að sinna þeim störfum sem fylgja heilbrigðiskerfinu okkar.
Unga fólkið í dag stendur frammi fyrir fjölda áskorana sem auka álag á andlega líðan þeirra og geta leitt til varanlegs skaða; kvíða, þunglyndis, fíkniefnaneyslu eða þau lenda bara á erfiðum stað í lífinu. Það verður að tryggja ungu fólki og öllum sem þurfa á meðferðarúrræðum að halda þjónustu við hæfi og sem betur fer hefur geðheilbrigðisþjónusta verið að eflast úti um land á heilbrigðisstofnunum þar. Það þarf samt að gera enn betur og það þarf líka að standa til boða í skólum landsins gjaldfrjáls þjónusta eins og sálfræðiþjónusta.
Fjarlækningar hafa verið að þróast og tel ég að þar sé hægt að nýta sér þá tækni enn frekar. Fólk utan af landi sem er að fara í einhverja aðgerð þarf t.d. að fara til Reykjavíkur í hálftímaviðtal við lækni með tilheyrandi kostnaði og fyrirhöfn, viðtal sem væri hægt að taka í gegnum fjarfund með heilbrigðisstarfsmanni. Ég tel það mikilvægt að opinbera heilbrigðiskerfið sé vel fjármagnað til að standast samkeppni í þeirri nýsköpun sem er í gangi og framtíðin felur í sér. Þannig þurfum við að tryggja jafnt aðgengi allra að heilbrigðisþjónustu hvar sem þeir búa á landinu.