nýsköpun í heilbrigðisþjónustu og einkarekstur.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. málshefjanda, Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, fyrir framsöguna og frumkvæðið. Ég ætla að nýta þennan stutta tíma sem ég hef í þágu sjúklinga með endómetríósu, endó, sjúkdóm sem hrjáir allt að 10% kvenna. Þrautaganga þeirra í íslensku heilbrigðiskerfi hefur verið með ólíkindum. Sjúkdómurinn getur valdið hryllilegum verkjum og ófrjósemi og þar til á síðasta kjörtímabili biðu konur lengi sárþjáðar eftir opinberri heilbrigðisþjónustu, langt umfram viðmiðunarmörk landlæknis. Þær sem höfðu efni á og reyndar líka þær sem höfðu það ekki gáfust upp á biðinni og greiddu einkaaðilum háar fjárhæðir úr eigin vasa fyrir heilbrigðisþjónustu. Í ákalli til stjórnvalda sögðu samtök um sjúkdóminn það vera nöturlega staðreynd að aðgengi að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu á Íslandi færi eftir efnahag. En svo breyttist allt til hins betra. Á síðasta kjörtímabili náðist nefnilega mikill árangur þegar þáverandi heilbrigðisráðherra samdi við einkaaðila um að þjónusta endósjúklinga. Með því styttust biðlistar og endósjúklingar urðu jafnsettir í íslensku heilbrigðiskerfi óháð efnahag. Er það ekki það sem við viljum? Það mun koma í ljós. Við höfum nefnilega fengið nýjan hæstv. heilbrigðisráðherra og hæstv. ráðherra má vita það að hér inni eru hv. þingmenn sem fylgjast vel með hennar störfum, hv. þingmenn sem gæta hagsmuna endósjúklinga. Ég hef nú þegar lagt inn fyrirspurn til hæstv. heilbrigðisráðherra til að kalla fram upplýsingar um þróunina og núverandi stöðu varðandi þjónustu við endósjúklinga. Ég bind vonir við að nýr hæstv. ráðherra kynni sér þessi mál vel og láti ekki gamaldags hugsun og fordóma í garð einkaaðila, byrgja sýn. Ómetanlegt framlag einkarekinna aðila til heilbrigðisþjónustu í heimsfaraldri og nú til þjónustu við endósjúklinga eru frábær dæmi um samstarf sem hefur gengið vel og vonandi heldur það áfram.