nýsköpun í heilbrigðisþjónustu og einkarekstur.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur fyrir að hefja þessa mikilvægu umræðu. Við stöndum frammi fyrir miklum áskorunum í heilbrigðiskerfinu og ljóst er að við getum ekki haldið áfram að veita þjónustu með sama hætti og hingað til. Þess vegna verðum við að hugsa skapandi, endurmeta og endurskipuleggja þar sem þörf er á. Stundum þarf að stokka upp, sameina krafta og sleppa því sem ekki virkar. Það er nýsköpun í verki. Fléttan er gott dæmi þar sem fræðasamfélagið og nýsköpunarfyrirtæki vinna saman að lausnum, en nýsköpun má ekki bara vera bundin við verkefnasjóði eða einstaka tilraunaverkefni. Hún þarf að skila sér í gegnum alla stjórnsýsluna og dagleg störf. Einnig þarf að tryggja þolinmæði því þróun lausna tekur tíma og stundum fá slík verkefni ekki tíma og fjármagn til að koma breytingum alla leið.
Mig langar líka til að benda á gildi þess að hvetja óhagnaðardrifin félög til að koma inn í slíka nýsköpun. Frjáls félagasamtök hafa oft verið leiðandi í nýsköpun í velferðarþjónustu því nýsköpun er alls konar. Hún getur líka falist í því að nálgast fólk og þjónustu með nýjum hætti og þannig minnkað álag á önnur og dýrari og sérhæfð kerfi. Innan kerfa skiptir miklu að stjórnendur hafi bæði hugrekki og framsýni til að prófa nýjar leiðir og treysta starfsfólki til að koma með hugmyndir og leiða umbætur því innan kerfanna sjálfra býr gríðarleg þekking. Starfsfólkið sem vinnur við þjónustuna daglega getur oft komið með skapandi lausnir. Með því að virkja þau getum við bætt þjónustu, starfsaðstæður og skilvirkni. Einnig má virkja notendur þjónustunnar því nýsköpun býr í okkur öllum.
Virðulegi forseti. Heilbrigðiskerfið stendur á krossgötum. Á Íslandi er samankomin mikil hæfni og færni og ég tek undir orð hv. þm. Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur um að við eigum að vera leiðandi. Ég hlakka til hvernig þróunin mun leiða okkur í betri og skilvirkari þjónustu okkur öllum til heilla.