nýsköpun í heilbrigðisþjónustu og einkarekstur.
Virðulegur forseti. Ég vék hér að heilbrigðisþjónustu svona í víðum skilningi í læknavísindunum í minni fyrri ræðu og nefndi þá miklu nýsköpun þar. Þessi umræða virðist nú einmitt lúta fremur að veitingu þjónustunnar og ég get tekið undir það með hv. málshefjanda þessarar umræðu, hv. þm. Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, að það eru mikil tækifæri í því að gera betur í því. Ég vék líka í fyrri ræðu minni að t.d. sjúkraskrám og aðgengi að þeim. Það veldur mér furðu að svona einfalt mál eins og aðgengi að sjúkraskrám og samtenging sjúkraskráa á milli ýmissa veitenda heilbrigðisþjónustu þurfi að vera svona þvælið fyrirbæri eins og blasir við a.m.k. þingmönnum þegar mál sem lúta að þessu koma hingað inn í þingið.
Þá vil ég nefna eitt mál sem stendur mér nærri og er persónuverndarlöggjöfin. Mér finnst stundum gæta í umræðu um þessa hagnýtingu á nýjum tæknilausnum að menn beri fyrir sig persónuverndarlöggjöf og ströng skilyrði sem menn þurfi að uppfylla til að gæta að persónuvernd og friðhelgi einkalífsins, sem vissulega skiptir mjög miklu máli í þessu sambandi og ber að umgangast viðkvæm persónugögn, sem sjúkragögn t.d. eru, með varúð. En ég geld hins vegar varhuga við þeim málflutningi ef menn ætla að beita fyrir sig persónuverndarlöggjöf og þessum sjónarmiðum, sem hafa verið grundvöllur okkar í réttarfari og stjórnskipun sem friðhelgi einkalífsins, ef menn ætla að fara að beita þeim fyrir sig til að heykjast á því að innleiða nýja tækni, vegna þess að ný persónuverndarlöggjöf kemur alls ekki í veg fyrir það að menn nýti alla þá tækni sem okkur býðst nú til dags til að höndla með gögn. Það er ekki boðlegt ef menn láta slíkt tefja sig vegna þess (Forseti hringir.) að persónuverndarlöggjöfin er einmitt skýr um að það er gert ráð (Forseti hringir.) fyrir að viðkvæmar persónuupplýsingar fari á milli manna og að um þær sé fjallað (Forseti hringir.) af ýmsum aðilum.