nýsköpun í heilbrigðisþjónustu og einkarekstur.
Virðulegi forseti. Ég fagna þessari umræðu hér í dag og þakka fyrir þá umræðu sem hér á sér stað. Sem íbúi úti á landi finn ég t.d. vel fyrir þörfinni á nýsköpun og fjarlækningum. Ég hef allt of oft farið þvert yfir landið til læknis til þess eins að láta taka blóðþrýsting og mæla hæð á barninu mínu. Ég hef farið landshlutanna á milli til að láta segja mér að sérfræðingurinn sem hefði þurft að hitta barnið sé nýfarinn í helgarfrí og því skuli ég koma aftur seinna, í fyrsta lagi eftir þrjá mánuði. Mikilvægi þess að geta nýtt einkarekna heilbrigðisþjónustu samhliða opinberri er ekki bara vanmetið heldur fyrir mína fjölskyldu skiptir það öllu máli. Sonur minn húkti á biðlista til að komast í ADHD-greiningu í rúm þrjú ár. Þessi þrjú ár hefðu þó orðið eitthvað lengri ef ekki hefði verið fyrir það að við fluttum úr Reykjavík og út á land þar sem hann komst framar á lista en hann var í Reykjavík. Biðinni lauk loksins. Það var ekki vegna skilvirkni hins opinbera heldur samninga við einkaaðila. Þannig tókst að saxa á lista og elsku drengurinn minn fékk loksins þá greiningu og þau verkfæri sem þurfti til að blómstra. Drengurinn minn er ekki lakur námsmaður, hann er nefnilega stórklár og mjög fyndinn. Hann er á unglingastigi og fær loksins að sýna hvað í honum býr. Ef hann hefði þurft að bíða mikið lengur hefði unglingastig grunnskólans ekki nýst honum sem sá góði undirbúningur fyrir það sem koma skal þegar hann fer í framhaldsskóla.
Forseti. Ég vil ekki búa í samfélagi sem hampar þeim efnameiri og tryggir að þau komist fram fyrir röðina fyrir nauðsynlega heilbrigðisþjónustu. En ég vil heldur ekki búa í samfélagi þar sem ríkið er sá eini sem fær að veita hana.