nýsköpun í heilbrigðisþjónustu og einkarekstur.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka málshefjanda, Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, fyrir að taka þetta mál á dagskrá sem er svo sannarlega mjög þýðingarmikið og þarft. Góð heilbrigðisþjónusta er einn af mikilvægustu hornsteinum samfélagsins. Heilbrigðiskerfið hefur á undanförnum árum staðið frammi fyrir auknum áskorunum vegna hækkandi meðalaldurs þjóðarinnar, en í þeim hópi fjölgar ört, ég tala nú ekki um langvinna sjúkdóma sem herja á samfélagið okkar. Til að mæta þessum áskorunum gegnir nýsköpun lykilhlutverki með því að innleiða tækni, þróa betri þjónustulíkön, efla samvinnu milli heilbrigðisstarfsfólks og vísindastarfsmanna og iðnaðar, og má bæta þar við allri þeirri þjónustu sem í kringum það er. Það mun verða til þess að lækka kostnað. Nýsköpun felst ekki aðeins í tækni heldur einnig því hvernig heilbrigðisþjónustan er skipulögð. Þverfagleg teymisvinna getur verið árangursrík þar sem læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraþjálfarar, sálfræðingar og aðrir vinna saman. Samþætt þjónusta sem horfir til forvarna, grípur snemma inn í með eftirfylgni, getur komið í veg fyrir alvarleg veikindi og dregið úr álagi á heilbrigðiskerfið til lengri tíma.
Fjarheilbrigðisþjónusta getur stuðlað að meiri hagkvæmni í heimaþjónustu, til að mynda við aldraða, sem er jú sístækkandi hópur í samfélaginu. Nútímasamskiptatækni nýtist m.a. í mörgum af þeim verkefnum sem heimaþjónustan veitir. Þar má nefna lyfjagjöf, blóðþrýstingsmælingar ásamt samveru í gegnum snjalltæki sem veitir einstaklingum öryggistilfinningu.
Samnýting einkarekinna fyrirtækja og ríkisfyrirtækja í heilbrigðisþjónustu er sífellt meira í umræðunni. Við þurfum að huga betur að samningum við einkareknar stofnanir og stytta þar með biðlista. Þeir samningar sem verða gerðir og eru búnir … (Forseti hringir.) En það sem ég vil bara segja að lokum er að hún er bráðnauðsynleg þessi samþætting milli einkarekinna fyrirtækja og ríkisfyrirtækja. (Forseti hringir.) Það má skoða það en það þarf líka að gera það með hagstæðum hluta á styttingu biðlista.