156. löggjafarþing — 54. fundur,  5. júní 2025.

nýsköpun í heilbrigðisþjónustu og einkarekstur.

[11:40]
Horfa

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Mig langar að þakka þingheimi fyrir þessa rosalega góðu umræðu sem hér hefur farið fram. Ég tek undir til að byrja með hæstv. ráðherra að lýðheilsan og að grípa fyrr inn í sé ekki síður mikilvægur þáttur til að mæta þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir. En þar er líka ekki síst tæknin sem getur svo auðveldlega hjálpað okkur að grípa fyrr inn í, greint fyrr og stutt við einstaklinga fyrr.

Mig langar að benda hæstv. ráðherra á aðgerðaáætlun um gervigreind sem liggur fyrir í stjórnkerfinu þar sem ég held að mætti setja inn fleiri aðgerðir og markmið varðandi heilbrigðiskerfið þegar það er reiðubúið til þess og vona að þeir hópar sem hæstv. ráðherra vísar í geti unnið hratt og örugglega því eins og hæstv. ráðherra sagði þá telur hún sig vita hvað komi út úr því eftir samtöl sín við nýsköpunarfyrirtæki. Ég tek undir þau orð, þarna getum við farið strax af stað í stað þess kannski að skipa enn fleiri hópa um hluti sem hafa verið ræddir margoft.

Það er mjög jákvætt að námið sé farið af stað í samstarfi háskóla og vona að orð hæstv. ráðherra séu ekki bara í orði heldur á borði og ég hlakka til að fylgjast með þeim ávinningi sem hæstv. ráðherra nær og hvet ráðherra til góðra verka.

Hér í umræðunni kom fram mjög skýr vilji, að mestu, að einkaframtakið getur aldeilis hjálpað kerfinu, hvort sem það er á landsbyggðinni eða ekki, með fjarlækningum og stytt biðlista og til þess eru persónulegar sögur sem hafa einmitt eytt kreddum um það, það er enginn að tala fyrir ójafnri þjónustu eða að það sé ekki aðgengi fyrir alla í kerfinu. Það er enginn að ræða það þegar við erum að ræða samninga eða að fé fylgi sjúklingum. Það fylgja því gríðarleg tækifæri að bjóða upp á fjarþjónustu, hvort sem það er í talmeinaþjónustu, sálfræðiþjónustu, ADHD-greiningum eða öðru um allt land með miklu betri hætti eins og við sjáum þegar verið er að innleiða fjarþjónustu frá Köru Connect eða Minni líðan eða öðrum íslenskum fyrirtækjum sem eru gríðarlega góð. — Ég þakka öllum fyrir þessa góðu umræðu.