nýsköpun í heilbrigðisþjónustu og einkarekstur.
Hæstv. forseti. Aftur þakka ég málshefjanda og þingmönnum öllum fyrir góða og gagnlega umræðu og gott að vita af stuðningi hér og mér heyrist við sammála um flesta hluti. Ég vil lýsa hrifningu á orðum hv. þm. Sigríðar Andersen um að heilbrigðiskerfið og heilbrigðisþjónustan sé samfelld nýsköpun, það er mikið til í því. Þingmaðurinn ræddi rafrænar sjúkraskrár og flækjustigið þar skýrist af gömlum kerfum og gríðarlegri innviðaskuld. Hv. þingmenn María Rut Kristinsdóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttir og Heiða Ingimarsdóttir ræddu fjarlækningar og mikið ónýtt tækifæri þar og þar er ég sammála. Hv. þm. Jónína Björk Óskarsdóttir benti á sóknarfæri í teymisvinnu og hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir gerði endó að umtalsefni og þar vil ég að gangi enn betur með meiri samhæfingu og samvinnu einkaaðila og opinbera aðila.
Líkt og ég kom inn á í fyrri ræðu minni tel ég nýsköpun vera forsendu þess að við náum að takast á við þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir. Það hafa verið stigin mörg mikilvæg skref í átt að nýsköpun og þróuðu heilbrigðiskerfi en þau þurfa að vera markvissari, stærri og þau hyggjumst við taka. Verkefnin eru ærin og við þurfum áframhaldandi samtal við bæði starfsfólk, stofnanir, nýsköpunargeirann og almenning. Fyrirhugað nýsköpunarþing sem ég nefndi verður án efa góður vettvangur. Ég er sannfærð um að með skýrri stefnu og hugrekki getum við skapað heilbrigðiskerfi sem er í fremstu röð og bæði traust og framsækið. Þar er nýsköpun hluti af eðlilegum rekstri.
Kærar þakkir enn og aftur fyrir góða umræðu.