vegabréfsáritanir.
Virðulegi forseti. Ég flyt hér ræðu sem fylgir frumvarpi til laga um vegabréfsáritanir. Ég tel mikilvægt að þetta mál komist á dagskrá og verði afgreitt á þinginu því að í því felst mikið hagræði og fleira eins og ég mun fara yfir hér á eftir.
Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um vegabréfsáritanir. Það er unnið í utanríkisráðuneytinu að höfðu samráði við dómsmálaráðuneytið. Frumvarpið hefur verið lagt fram með afbrigðum til að hægt sé að mæta þeirri öru þróun sem hefur orðið í áritunarmálum á síðustu mánuðum og um leið auka skilvirkni, það skiptir máli að auka skilvirkni og afkastagetu í málaflokknum. Því gafst því miður ekki tækifæri til að kynna það einnig í samráðsgátt stjórnvalda og fyrir hagaðilum. Ég vil þó undirstrika að hagaðilar, til að mynda í ferðaþjónustu, hafa undanfarin misseri ítrekað nálgast utanríkisráðuneytið og óskað eftir að bætt yrði úr stöðu áritunarmála og afkastagetan aukin hvað þetta varðar líkt og, þegar upp er staðið, hér er lagt upp með.
Það hefur verið ör vöxtur í áritunarmálum síðustu misseri og hann hefur skilað fleiri ferðamönnum til Íslands og hann hefur líka aukið ríkistekjur verulega. Árið 2024 bárust rúmlega 35.500 umsóknir um vegabréfsáritanir til Íslands sem var tæplega 60% fjölgun frá árinu 2023. Það má áætla að 35.000 ferðamenn skili um 12 milljörðum kr. í hagkerfið. Þá nema tekjur ríkissjóðs af 35.000 umsóknum u.þ.b. 450 millj. kr. Það sem af er þessu ári hafa borist um 25.000 umsóknir. Það er áætlað að vöxtur í fjölda umsókna verði um 60% annað árið í röð og þær verði í kringum 60.000 í lok þessa árs. Slíkur fjöldi ferðamanna, virðulegur forseti, myndi geta skilað um 21 milljarði í hagkerfið og umsóknargjöld sem rynnu í ríkissjóð yrðu um 780 millj. kr.
Hér er um að ræða ferðamenn frá mörkuðum á borð við Kína og Indland, fjölmennustu ríkjum heims. Ég vil minna á að EFTA-ríkin hafa einmitt gert fríverslunarsamning við Indland. Þetta eru ferðamenn sem eru ríkisborgarar Evrópuríkja, Bandaríkjanna og Bretlands. Þeir komast hingað til lands án vegabréfaáritunar á grundvelli þar til gerðra samninga einmitt í tengslum við Schengen-ríkin. Meiri hluti heimsins þarfnast aftur á móti Schengen-vegabréfaáritunar til að geta sótt Ísland heim.
Þessi öri vöxtur í áritunarmálum hefur samhliða tekjuaukningunni leitt til verulegs aukins álags og skapa tiltekna flöskuhálsa, því miður, í stjórnsýslu áritunarmála. Frumvarpinu er því einkum ætlað að einfalda og létta stjórnsýslu áritunarmála og hagræða í ríkisrekstri samhliða áframhaldandi tryggri landamærastjórn og skilvirkri framkvæmd landamæravörslu. Á sama tíma munu, líkt og komið hefur fram, tekjur í ríkissjóð aukast og ferðamönnum fjölga.
Ég vil draga það fram að frumvarpið grundvallast að meginstefnu til á gildandi laga- og reglugerðarákvæðum sem lagt er til að færa í sérlagabálk um vegabréfaáritanir. Þannig eru efnislegar breytingar í rauninni fáar enda um að ræða samræmt Schengen-regluverk. Helsta breytingin er sú, virðulegi forseti, að framkvæmd áritunarmála færist alfarið til utanríkisráðuneytisins sem nú annast þegar um 95% framkvæmdarinnar. Með tilfærslunni verður skilvirkni aukin, afkastagetan verður efld og tvíverknaði eytt. Tilfærslan mun draga verulega úr eða útrýma álagi sem tengist vegabréfaáritunum hjá Útlendingastofnun og líka hjá kærunefnd útlendingamála. Útlendingastofnun mun ekki lengur þurfa að stimpla synjunartillögur utanríkisþjónustunnar, en það veldur í dag töfum í stjórnsýslunni. Í tilfelli kærunefndar útlendingamála verður álagi útrýmt með því að breyta kæruleið til nefndarinnar að finnskri fyrirmynd í endurskoðunarferli innan utanríkisráðuneytisins en í dag eru ríflega 30% mála nefndarinnar vegabréfsáritanir. Þessi mál munu því hverfa frá kærunefndinni og það gefst aukið svigrúm bæði hjá kærunefndinni en líka innan Útlendingastofnunar. Frumvarpið mun stuðla bæði að auknum tekjum í ríkissjóð og ánægðari ferðaþjónustu ásamt áframhaldandi tryggri landamærastjórn. Það er gríðarlega mikilvægt.
Virðulegi forseti. Ég legg til að málinu verði vísað til hv. utanríkismálanefndar að lokinni þessarar umræðu og um leið til 2. umræðu.