156. löggjafarþing — 54. fundur,  5. júní 2025.

vegabréfsáritanir.

431. mál
[11:52]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það var auðvitað haft samráð við dómsmálaráðuneytið og þær stofnanir sem þar falla undir og það skiptir máli að það sé gert. Ég tel líka, og ég kom inn á það í framsögunni, að þetta grundvallist á m.a. þeirri reynslu sem hefur verið hér en líka ákalli frá ferðaþjónustunni. Þess vegna var m.a. haft óformlegt samráð við ferðaþjónustuna sem er að kalla eftir aukinni skilvirkni. Við erum líka með þessu, eins og ég segi, að einfalda kerfið, við erum að ná ákveðinni hagræðingu í kjölfar þeirrar þekkingar sem er að byggjast upp líka innan utanríkisráðuneytisins. Við sjáum að álagið á Útlendingastofnun er mjög mikið og við teljum að þetta sé líka ákveðin leið þar sem við getum létt til þar. En einfaldlega erum við að einfalda, hagræða. Við erum að auka tekjur ríkisins og við erum svolítið að horfast í augu við það að það eru fleiri ferðamenn að koma til landsins sem einmitt eru ekki innan Schengen-ríkjanna og þá er eins gott að vera tilbúin með kerfi, þekkingu og þjónustu til að geta tekið á móti þeim. Um leið, ég vil líka undirstrika það, þá þurfa þeir ferðamenn sem hingað vilja koma, þeir vita það, að borga fyrir þessa þjónustu.

Hefði verið betra að setja málið í samráðsgátt? Já, það hefði örugglega verið betra en það er mitt pólitíska mat að það þarf að vera ákveðið jafnvægi í þeim hlutum þegar kemur að framlagningu mála. Ég tel þetta mál ekki vera bullandi pólitískt mál. Þetta er einfaldlega hagkvæmni, einföldun á kerfi sem m.a. hefur verið í þróun innan ráðuneytisins á umliðnum misserum og árum og við erum einfaldlega að taka keflið áfram í þá veru, læra svolítið af því sem við erum búin að sjá að eru veikleikar og hindranir. Við erum að reyna að ýta þessum hindrunum út úr kerfinu í þágu m.a. atvinnugreina eins og ferðaþjónustunnar, sem er mikilvægt, en líka að auka skilvirkni og geta svarað greiðlega fyrirspurnum og í raun þeirri ásókn sem er í því að koma til Íslands.