156. löggjafarþing — 54. fundur,  5. júní 2025.

vegabréfsáritanir.

431. mál
[11:56]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er í rauninni alveg sammála hv. þingmanni að það er auðvitað pólitík fólgin í því að einfalda kerfið og ná fram hagræðingu. Það er hluti af því sem við m.a. lögðum upp með og ræddum mjög þegar við vorum að mynda ríkisstjórn, að við vildum sjá hagræðingu í kerfinu. Efni frumvarpsins sem slíks er að því leytinu til þannig að, og í ljósi þess að það er líka á áætlun ríkisstjórnarinnar að einfalda og hagræða í stjórnsýslunni, ég taldi rétt að leggja málið fram. Það hefur til viðbótar verið mjög ör vöxtur áritana í þessum málaflokki og það hefur leitt til aukins álags og dregið úr málshraða, m.a. synjana og kærumála, þessi mikli kúfur sem er núna. Við erum að sjá áberandi fleiri mál núna heldur en áður og við erum að reyna að fara í þetta með þessum hætti, m.a. til að losa um þessa flöskuhálsa sem hafa myndast í kerfinu.

Það verður ekki tilfærsla á starfsfólki á milli Útlendingastofnunar og yfir í utanríkisráðuneytið. (Forseti hringir.) Það er einfaldlega svigrúm til að nýta starfsmenn Útlendingastofnunar í önnur málefni og við höfum séð að það hefur verið ákall eftir því að styrkja Útlendingastofnun og nú gefst færi á því, þegar starfsmenn þar losna þá þarf ekki að fjölga þar heldur koma núna starfsmenn (Forseti hringir.) til viðbótar við þau verkefni sem er ákall um þar. En þetta er fyrst og síðast einföldun, hagræðing, betri þjónusta fyrir atvinnugreinina og samfélagið í heild.

(Forseti (BHar): Forseti minnir hæstv. ráðherra á tímamörkin.)