156. löggjafarþing — 54. fundur,  5. júní 2025.

vegabréfsáritanir.

431. mál
[11:58]
Horfa

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að segja eins og hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir að ég lít á þetta frumvarp mjög jákvæðum augum og það kemur inn í utanríkismálanefnd hvar við báðar sitjum. Mig langaði að spyrja hæstv. utanríkisráðherra varðandi það sem segir hér í kafla 2.1, um tilefni og nauðsyn lagasetningar, og snýr að fyrirsvarssamningum við þau ríki sem taka til afgreiðslu umsóknir um vegabréfsáritanir fyrir okkur. Er áformað að taka fleiri slíka samninga yfir til okkar? Þegar reglulega koma upp mál þar sem íslenskir ríkisborgarar eru ýmist ósáttir við afgreiðslu mála eða tímann sem það tekur o.s.frv., þá er leitað til okkar og það er alla jafna frekar flókið að útskýra að þetta sé mál sem varðar hagsmuni ríkisborgarans og sé á okkar ábyrgð en við erum í rauninni búin að framselja það vald til annars ríkis og getum þar af leiðandi ekkert haft nokkur einustu afskipti af þeim. Ég er auðvitað ekki að spyrja hvort Ísland ætli að sinna þessu öllu sjálft gagnvart öllum ríkjum í heiminum, enda kemur fram í frumvarpinu að til að mynda sjáum við ekki um þetta þegar kemur að ríkjum í Afríku. En með því að ná þessari auknu skilvirkni á eina hendi, þ.e. undir utanríkisráðuneytið, og með þessari miklu fjölgun verður ákveðin straumlínulögun og stærðarhagkvæmni í þessu. Getur það leitt til þess að við ráðum við að sinna meiru af þessu sjálf? Það eru ekki endilega mikil útgjöld, enda höfum við verið að setja ný útgjöld í þessi verkefni en það skilar sér og gott betur í tekjum á móti, fyrir utan óbeinu áhrifin af því að fá fleiri ferðamenn.