vegabréfsáritanir.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og einmitt innsýnina í þennan málaflokk og jákvæðar viðtökur eins og hjá hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur. Það skiptir mjög miklu máli upp á að málið vonandi nái fram að ganga, því ég tel þetta mál ekki vera flókið.
Fyrirspurn hv. þingmanns gekk út á fyrirsvarssamningana. Já, það er áformað að taka fleiri samninga yfir og taka þá til okkar, ég ætla bara að segja það. En það gerist líka í kjölfarið á aukinni þekkingu, aukinni reynslu og afkastagetu ráðuneytisins í þessum málum. Já, við ætlum að gera það og við erum lengst komin í því að skoða Suðaustur-Asíu, þar eru mörg mál að koma upp, m.a. í Taílandi. Það sem er líka hægt að nefna er að við erum sérstaklega að skoða Tyrkland í þessu samhengi og hugsanlega taka það líka til okkar. En það er líka rétt að geta þess að í byrjun vikunnar tókum við yfir Sameinuðu furstadæmin, það náðum við að gera. Þær umsóknir verða núna sendar til Nýju-Delí og afgreiddar í sendiráðinu okkar þar. Á undanförnum árum, og hv. þingmaður þekkir það náttúrlega mun betur en ég, hafa íslensk stjórnvöld lagt aukna áherslu á að taka yfir fleiri fyrirsvarssamninga, í rauninni bara eins og hægt er. Við tókum yfir fyrirsvar í Bandaríkjunum, Bretlandi, Indlandi og Kína að hluta og í byrjun þessa árs tók Ísland yfir fyrirsvar á Írlandi og í Kanada líka, þannig að þetta er í þróun og mikilli gerjun. Ég vil líka draga fram, því mér fannst ég kannski ekki ná að svara því sem kom fram hér áðan — en ég sé að tími minn er útrunninn.
Stutta svarið er: Já, við erum að stefna að því að taka enn fleiri fyrirsvarssamninga að okkur og við gerum það í krafti þess að það er aukin þekking og aukin afkastageta hjá ráðuneytinu að byggjast upp.