vegabréfsáritanir.
Frú forseti. Í seinna andsvari er ekki tími til að ræða það á dýptina en ég vildi bara hafa nefnt það við þetta tækifæri, sem er eitthvað sem nefndin kannski tekur til einhverrar skoðunar, þó ekki á dýptina af því að þetta er svo sem ekki mjög flókið frumvarp sem hér er verið að mæla fyrir, en það snýr að því að samhliða því að við tökum meiri ábyrgð á þessum málum sjálf og um er að ræða mismunandi ríki, hvort ráðherra sjái fyrir sér að samhliða verðum við líka að byggja upp ákveðna getu og burði til að hafa skýra yfirsýn og þekkingu í þessu. Við erum að tala um jákvæðu áhrifin gagnvart ferðaþjónustunni og þeim sem vilja sækja landið heim en það eru auðvitað líka aðrar hliðar á því, þ.e. að við séum með yfirsýn yfir það ef t.d. væri um að ræða mikinn fjölda fólks frá ákveðnum ríkjum, að við vitum um hverja ræðir upp að einhverju marki (Forseti hringir.) og einfaldlega að við höfum burði til að sinna því sem við erum hér að leggja til að sinna í meiri mæli.