vegabréfsáritanir.
Virðulegi forseti. Þetta er mjög mikilvægur punktur og þetta er það sem við höfum líka lagt áherslu á í ráðuneytinu, að í ljósi varnar- og öryggismála þá verðum við að vera með alla þreifara úti þegar kemur að þessu. Ég er þess fullviss að við munum njóta þess til að mynda að CERT-IS er komið inn í ráðuneytið og ég held að það muni styrkja alla þessa umgjörð. Ég hef fengið líka fyrirspurnir um það hvort þetta muni ekki auka bara hugsanlega fjölda hælisleitenda en ég vil geta þess að í því kerfi sem hefur verið byggt upp núna, að mínu mati, og við erum að halda áfram þeirri þróun, þá hefur það sýnt sig að svo er ekki. Mig minnir að talan sé tíu, af öllum þessum fjölda sem hefur verið að sækja um áritanir á umliðnum fimm árum hafa einungis tíu farið þá leið að sækja um hæli eða dvalarleyfi hér á landi til lengri tíma. Ég horfi hér á ráðuneyti sem er skilvirkt, það er búið að byggja það vel upp og ég held að þeir sem eru hér inni megi alveg taka til sín það hrós.