156. löggjafarþing — 54. fundur,  5. júní 2025.

vegabréfsáritanir.

431. mál
[12:07]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla bara undirstrika þá tölu sem ég sagði áðan. Ég vil um leið draga fram að reynslan sýnir — ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar pælingar og vangaveltur, mjög eðlilegar — reynslan með þetta fyrirkomulag sem er búið að byggjast upp og við erum að þróa okkar þekkingu og afkastagetu í samræmi við það, sýnir að af þeim ferðamönnum sem hafa komið hingað til lands á síðustu fimm árum hafa einungis tíu sótt um hæli í gegnum okkar stóra kerfi þrátt fyrir þúsundir umsókna. Það er auðvitað mjög mikið samstarf við dómsmálaráðuneytið og Útlendingastofnun. En ég vil draga fram að áherslur dómsmálaráðuneytisins og Útlendingastofnunar í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd eiga eðli málsins samkvæmt, að mínu mati, ekki við ferðamenn. Málaflokkurinn á hins vegar mikla samlegð með ferðaþjónustu og það sem við erum að reyna að taka á hér hvað viðkemur streymi ferðamanna til Íslands hefur ekki í rauninni með málefni flóttafólks að gera þó að auðvitað sé mikilvægt að huga að áhættuþáttum tengdum flóttafólki við afgreiðslu umsókna. Sú þekking er einmitt að byggjast upp sem sýnir að það er mjög lítið að koma, það er lítill leki, ef það er hægt að orða það þannig, í gegnum þetta kerfi.

Varðandi landamærin þá er verið að efla sérstaklega landamæravörslu með því að færa synjunarvald til þeirra sem hafa mestu, með leyfi forseta, „hands on“-þekkinguna á yfirferð umsóknanna sem slíkra. Starfsmenn utanríkisráðuneytisins þekkja strauma og stefnur hvað varðar t.d. sviksemi og ýmislegt fleira og flagga því strax. Það er ekki rétt að meginþorri þeirra sem koma hingað og sækja um hæli komi sem ferðamenn. Í öllu falli hafa þeir ekki fengið þessar vegabréfsáritanir hjá okkur í ráðuneytinu heldur þá öðru Schengen-ríki, ekki í gegnum ráðuneytið. Ég vil draga það fram að frumvarpið byggir á m.a. finnskri fyrirmynd og það virkar vel í Finnlandi.