156. löggjafarþing — 54. fundur,  5. júní 2025.

vegabréfsáritanir.

431. mál
[12:10]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir þetta. Það kann að vera auðvitað að ástæðan fyrir því að það séu einungis tíu sem hafi komið hérna utan Schengen-svæðisins sem ferðamenn og hafi sótt um hæli, sé sú að menn hafa í gegnum tíðina einmitt tekið ákvörðun um að veita ekki vegabréfsáritun til stórra hópa, t.d. stórum hópum frá Kína, frá Pakistan og öðrum löndum þar sem dönsk stjórnvöld hafa í okkar nafni tekið ákvörðun um að veita ekki vegabréfsáritun. Það er þess vegna sem ég hef áhyggjur, í ljósi þess sem hér segir í greinargerðinni um þanþol margra umsóknarstaða hjá þessum fyrirsvarsríkjum okkar, Danir eru sérstaklega nefndir hérna. Þeir höfðu óskað eftir að samningar yrðu uppfærðir þannig að þeim yrði heimilt að takmarka umsóknarfjölda og íslensk stjórnvöld myndu taka þátt í hluta rekstrarkostnaðar. Ef Danmörk var komin að einhverju þanþoli, einhverjum mörkum, þá velti ég fyrir mér hvort Ísland sé í raun í stakk búið fyrir þetta.

Mig langar líka að bæta við einni spurningu um að hvaða leyti þetta frumvarp samræmist hugmyndum Schengen-ríkjanna og Schengen-samstarfsins (Forseti hringir.) um áritunarskyldu, sameiginlega áritunarskyldu, sem er ETIAS. Er tekið tillit til þess í þessu frumvarpi?