vegabréfsáritanir.
Virðulegi forseti. Ég vil undirstrika að það fer fram mjög vandvirk yfirferð á hverri einustu umsókn. Það er mjög mikil áhersla lögð á svonefnda aðflutningshættu, þannig að það sé líka dregið fram. Landamæralögreglan og eftirlit í því samhengi breytist ekki neitt. Hv. þingmaður spyr hvort við höfum burði til þess að gera þetta. Já, við höfum burði til þess að gera þetta. Við þurfum vel að merkja ekki að taka á móti öllum umsækjendum. Við höfum stjórn á þessu. Það er okkar að stýra þessu. En við erum að gera þetta líka mjög meðvitað um samhengi og mikilvægi til að mynda ferðaþjónustunnar. Ef við færum í það að bera saman hlutfall ferðaþjónustu af vergri landsframleiðslu þá er hún 10,9% hér á Íslandi árið 2019, sem sýnir hvað hún er mikilvæg, meðan hún er til að mynda í Danmörku 2,4%, 2,7% í Finnlandi, 2,5% í Svíþjóð og 4,2% í Noregi. Það skiptir máli að stjórnkerfið okkar sé mjög meðvitað um þetta — við erum með eftirlit með þessu, við erum með yfirsýn yfir þetta — og að stjórnkerfið fúnkeri í samvinnu við atvinnulífið. (Forseti hringir.) Það er það sem við erum m.a. að gera í þessu máli. En öryggisþátturinn, stjórnun á (Forseti hringir.) landamærunum, við höfum tök á því og ef eitthvað er þá erum við að skerpa á því undir dyggri forystu dómsmálaráðherra.
(Forseti (BHar): Forseti minnir bæði hv. þingmenn og hæstv. ráðherra á að virða tímamörk.)