vegabréfsáritanir.
Frú forseti. Já, það er auðvitað rétt og ágætt að hafa það algerlega skýrt að að sjálfsögðu er ábyrgðin hjá dómsmálaráðuneytinu og sömuleiðis að það sem kemur fram í þessu frumvarpi þegar kemur að þessum öryggisvinklum eða varnöglum er nú þegar í lögum. En þegar um er að ræða verkefni sem flyst frá undirstofnun þess ráðherra sem ber yfirábyrgð yfir í annað ráðuneyti skiptir máli að þetta sé skýrt í lögum. Síðan eru önnur atriði sem verið er að færa úr reglugerð í lög.
Auðvitað fylgja því gríðarlega mikil tækifæri að færa þetta allt yfir í stafræna málsmeðferð og stafrænar umsóknir. Við eigum auðvitað bara að hafa þann metnað hér á Íslandi, ýmist í krafti smæðarinnar eða einfaldlega bara vegna þess að við höfum burði til að gera það, að vera framúrskarandi í stafrænni þjónustu. Sérstaklega er það jákvætt fyrir smáa utanríkisþjónusta þar sem við erum á mjög stórum svæðum ekki með sendiráð eða bókstaflega viðveru. Við getum bætt okkar þjónustu í raun enn meira í samanburði við aðra með því að nýta þessar leiðir og þessa tækni, fyrir utan að það einfaldar samskipti almennra borgara gagnvart stjórnvöldum.