vegabréfsáritanir.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir fína framsögu og bara fínustu svör sem hafa komið fram og málið er að upplýsast miklu betur í þessari umræðu. Til þess erum við nú hér í þessum þingsal, til að kafa dýpra ofan í þau mál sem við erum að vinna við hverju sinni og fá svör við spurningum sem kunna að brenna á okkur.
Eins og fram kemur í greinargerð er frumvarpið sagt vera liður í stefnu stjórnvalda um að efla afkastagetu við útgáfu vegabréfsáritana til að mæta mikilli eftirspurn og til að Ísland geti sjálft annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir í auknum mæli. Þetta þekki ég nú ágætlega frá mínu fyrra lífi þegar ég var aðstoðarmaður í utanríkisráðuneytinu. Ég þekki ágætlega til þessara mála. Það er í greinargerð komið sérstaklega inn á þessa öðru þróun sem hefur orðið í áritunarmálum á síðustu mánuðum og árum. Það kemur fram í greinargerð að undanfarin fjögur ár hafi orðið „verulegur vöxtur“, svo notast sé við orðalag greinargerðarinnar, í fjölda umsókna. Hér er farið vel yfir það að árið 2022 hafi borist 7.500 umsóknir, árið 2023 22.500, árið 2024 hafi umsóknir um vegabréfsáritanir verið 35.500 og núna sé áætluð fjölgun um 50–60%, þannig að það verður að taka undir að hér er um verulega fjölgun að ræða með tilheyrandi vaxandi álagi og þrýstingi.
Við viljum auðvitað gjarnan styðja við þessi markmið sem er farið ágætlega yfir í greinargerð um að við fjölgum hér ferðamönnum og að stjórnsýslan okkar sé skilvirk við afgreiðslu þessara umsókna. Og ég get því endurtekið það sem ég sagði hér í andsvörum rétt áðan að ég lít þetta mál bara mjög jákvæðum augum.
Aðeins varðandi það sem hefur komið fram bæði hér í umræðunni og kemur fram og er lögð áhersla á í greinargerð, þ.e. hagræðingu í ríkisrekstri og að við fyrirbyggjum tvíverknað. Markmiðið er, með leyfi forseta, „að einfalda stjórnsýslu og hagræða í ríkisrekstri“. Við hæstv. ráðherra urðum sammála um það hér fyrr í umræðunni að auðvitað væri það pólitík, pólitísk skilaboð og forgangsröðun, að einfalda og hagræða. En þá verður auðvitað líka raunverulega að gera það. Við þekkjum allt of mörg dæmi um það að stjórnmálamenn koma fram með frumvörp eða þingmál eða áherslur í sínum ráðuneytum, til að mynda um að einfalda og hagræða, og hafa uppi um það fögur orð og fögur fyrirheit, en raunin verður síðan ekkert endilega sú. Það er allt of oft sem niðurstaðan verður bara, afsakið slettuna, status quo. Þess vegna langaði mig til að hvetja hæstv. ráðherra til að fylgja þessu vel eftir. Ég þykist vita að hæstv. ráðherra hefur metnað til þess að standa við það sem hér er lagt upp með og að hún fylgi því raunverulega eftir að þetta verði ekki hagræðing eða meint hagræðing sem hverfi bara í hítina, það fylgi þessu raunverulega einhver hagræðing og aukin skilvirkni í kerfinu.
Það er eitt sem mig langaði til að nefna í viðbót sem fram kemur hér í greinargerðinni og það er að til þess að stuðla að skilvirkni, einfalda stjórnsýslu og hagræða í málaflokknum er lagt til að ákveðin ákvæði og kafli stjórnsýslulaga muni ekki gilda um málsmeðferð og ákvörðunartöku í tengslum við umsóknir um vegabréfsáritanir. Þetta byggist á sjónarmiðum um skilvirkni og hagkvæmni og því að áritunarmál snúi að ferðamönnum, sem er auðvitað allt annars eðlis heldur en þegar við erum að fjalla um t.d. stöðu og umsóknir fólks sem sækir um alþjóðlega vernd. Það er komið inn á það í greinargerð að þessi breyting á kæruleið sé einföldun og að þetta sé að finnskri fyrirmynd.
Mig langar til að hrósa þessu alveg sérstaklega því að við mættum gera þetta í miklu meiri mæli, við mættum líta til Norðurlandanna og fara að þeirra góðu fordæmum en líka læra af mistökum sem þau hafa gert. Þetta gerum við auðvitað statt og stöðugt í öllum málaflokkum en það hefur borið á því að það hefur verið ákveðin hentistefna. Stundum viljum við læra, stundum viljum við ekki læra. Stundum viljum við fá að brenna okkur sjálf og endurtaka mistök. Mér finnst það bara til fyrirmyndar að við séum að líta til Norðurlandanna varðandi þessa leið sem er verið að leggja til í þessu frumvarpi að verði farin.
Bæði hæstv. utanríkisráðherra og hv. 1. þm. Suðvest., Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fóru ágætlega yfir þetta mál í sínum ræðum og í þeim umræðum sem þegar hafa skapast um málið. Ég sit í hv. utanríkismálanefnd og hlakka til að fá málið þar inn til frekari meðferðar og afgreiðslu og vænti áframhaldandi góðs samstarfs við hæstv. ráðherra um málið.