156. löggjafarþing — 54. fundur,  5. júní 2025.

vegabréfsáritanir.

431. mál
[12:34]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Mig langaði að leggja nokkur orð í belg í umræðu um þetta mál sem sýnist við fyrstu sýn vera kannski bara stjórnsýsluleg tilfærsla á verkefnum, tæknilegt mál, og kann að vera það og er það alveg örugglega að mestu leyti. Mig langar þó að nefna það hér að þessum málum hefur verið þannig háttað að vegabréfsáritanir hafa verið veittar af samstarfsríkjum okkar úti um allan heim, einkum og sér í lagi Danmörku sem hefur séð um vegabréfsáritanir fyrir Ísland í tilteknum ríkjum. Við erum auðvitað að tala alltaf um ríki utan EES-svæðisins, utan Schengen-svæðisins, en borgarar langflestra ríkja í heiminum þurfa vegabréfsáritun til að koma hingað sem ferðamenn. Við erum auðvitað búin að gera samninga við nokkrar okkar helstu samstarfs- og vinaþjóðir um undanþágur frá vegabréfsáritun og það á bæði við um Íslendinga sem ferðast þangað og þarlenda borgara. Sem dæmi má nefna Bandaríkin, Bretland og fleiri ríki. Danmörk hefur sem sagt verið að sjá um þetta fyrir okkur undanfarin ár og það hefur verið ærið verk, umsvifin fyrir hönd Íslands í þessu fyrir Danmörku hafa verið aukast, eðli máls samkvæmt. Í ljósi sívaxandi vinsælda Íslands sem áfangastaðar ferðamanna hvaðanæva úr heiminum þá hafa þessi verkefni verið að aukast hjá Dönum. Það er komið inn á það hér í greinargerð að þanþol margra umsóknarstaða hjá fyrirsvarsríkjunum, m.a. Danmörku, hafi verið komið að ystu mörkum þá þegar 2018. Þá höfðu Danir óskað eftir að samningar við þá yrðu uppfærðir þannig að þeim yrði heimilt að takmarka umsóknarfjölda og að íslensk stjórnvöld myndu taka þátt í hluta rekstrarkostnaðarins. Það lá sem sagt fyrir þá og hefur legið fyrir lengi að kostnaðurinn hefur verið að aukast.

Ég skil það þannig að þetta frumvarp gangi út frá því, nái það fram að ganga, að þá verði engir samningar við önnur ríki um afgreiðslu vegabréfsáritana. Ég ræð það þó ekki beint af frumvarpinu en ég beini því til hv. allsherjar- og menntamálanefndar sem mun fjalla um málið að skoða þetta, hvernig menn sjá fyrir sér í framhaldinu að íslensk stjórnsýsla, þ.e. íslensk sendiráð á þeim stöðum sem við höfum sendiráð erlendis, sem eru auðvitað á takmörkuðum stöðum, nái að anna allri eftirspurn alls heimsins fyrir vegabréfsáritun. Nýjasta áritunardeildin hefur verið tekin upp í sendiráðum Íslands í Nýju-Delí og Washington eins og greint er frá hérna. Ég tek það þó aftur, virðulegur forseti, ég er ekki viss um að ég skilji rétt þessa tilvísun í London og Washington.

Hitt er annað mál að ég veit til þess að útgáfa vegabréfsáritana er ekki bara einfalt stjórnsýsluatriði, það er ekki bara stimpill sem menn eru að sækja til afgreiðslustaða heldur þarf að fara fram ítarleg skoðun á hverri umsókn fyrir sig. Hæstv. utanríkisráðherra nefndi það í andsvari við mig að það væru lítil brögð að því að menn kæmu hingað til Íslands sem ferðamenn með uppáskrifaða vegabréfsáritun en óskuðu síðan hér eftir alþjóðlegri vernd. Það er sannarlega rétt hjá hæstv. utanríkisráðherra. Flestir sem hafa komið hingað og sótt um alþjóðlega vernd eru að koma frá öðru Schengen-ríki, eru sem sagt komnir inn á Schengen-svæðið. En það breytir því þó ekki að hafa þarf í huga að nokkuð miklum fjölda fólks hefur verið neitað um vegabréfsáritun til Íslands, hópi fólks utan Schengen-ríkjanna, m.a. af samstarfsríkjum okkar sem gefa út vegabréfsáritanir vegna þess að þau hafa þótt greina einhvern annarlegan tilgang eða annan tilgang en bara hreina ferðaheimsókn til Íslands. Ég held að það liggi alveg fyrir en beini því til hv. allsherjar- og menntamálanefndar að fá á þessu skýringu líka. Það þarf að huga að sérstaklega í þessu sambandi umfangi vinnunnar sem liggur að baki hverri rannsókn við afgreiðslu umsóknar um vegabréfsáritun.

Það væri auðvitað æskilegt ef Ísland gæti sinnt þessu öllu saman. En það er alveg málefnalegt að hafa efasemdir um ekki bara fjárhagslega burði heldur líka tæknilega af því að þessi afgreiðsla kallar á einhver sérstök tæki og tól sem mér hefur skilist að ekki öll sendiráð Íslands hafi yfir að búa. En einkum og sér í lagi kallar þetta á mannafla og ákveðna þekkingu og innsýn og jafnvel aðgang að einhverjum upplýsingakerfum utan Schengen-svæðisins. Mér finnst mikilvægt að það liggi fyrir hvort Ísland fái aðgang að þeim, taki Ísland þetta alfarið yfir.

Ég hefði líka áhuga á að því yrði velt upp, jafnvel þótt þetta frumvarp næði fram að ganga og Ísland tæki sjálft yfir allar þessar vegabréfsáritanir, hvort þar með sé nokkuð verið að koma í veg fyrir eða einhvern veginn hindra það að takmarka möguleika Íslands á að vera áfram í einhverju samstarfi við t.d. Danmörku, sem hefur verið að sinna þessu fyrir okkur og hvort gert sé ráð fyrir því, jafnvel þótt við tækjum að okkur alla vinnsluna, að viðhöfð sé einhvers konar samvinna við t.d. Norðurlöndin. Það er alveg ótvírætt að umsækjendur um vegabréfsáritanir til Íslands eru líka að sækja um vegabréfsáritanir inn til annarra Norðurlanda. Mér fyndist fara ágætlega á því að það myndi liggja fyrir við skoðun, við þinglega meðferð, hvernig því verður háttað. Ég myndi a.m.k. hvetja til þess að það sé með einhverjum hætti tryggt að menn geti haldið áfram einhverju samstarfi um þessar vegabréfsáritanir.

Svo vildi ég nefna það líka að hér er frumvarp sem kveður á um, nái það fram að ganga, að lögin gildi um vegabréfsáritanir til ferðamanna. Hér er hugtakið ferðamenn notað gegnumgangandi og í athugasemdum með frumvarpinu er líka vísað til þess að markmið þess sé liður í stefnu stjórnvalda um að efla afkastagetu og einnig að mæta óskum ferðaþjónustunnar. Það er auðvitað sjálfsagt að að gera það og ég fyrir mitt leyti tek undir það. Það breytir því hins vegar ekki að í þessu frumvarpi er vísað til laga um útlendinga og almennt notum við hugtakið útlendingar um útlendinga, líka þá sem eru ferðamenn. Það getur auðvitað verið tilefni til þess að nota í einhverjum tilfellum eingöngu hugtakið ferðamenn. En ég bendi sérstaklega á þetta í tengslum við t.d. 7. gr. frumvarpsins sem fjallar um undanþágur frá áritunarskyldu og þar er vísað til laga um útlendinga. Í 3. mgr. er nú vísað til aðstandenda. Aðstandenda hverra, myndi ég spyrja. Þetta er svolítið óljóst ákvæði vegna þess að þarna er síðan vísað að öðru leyti til laga um útlendinga sem fjallar um námsmenn og þá sem eru í tímabundinni dvöl. Hér í frumvarpinu er hins vegar vísað til aðstandenda sem hafa þó gilt dvalarskírteini. Það eru svona atriði, ákveðin atriði sem ég held að þyrfti að skýra aðeins og skerpa aðeins á orðalagi.

Í þessu sambandi vil ég líka nefna að það er auðvitað ásókn í dvalarskírteini hér og dvalarleyfi almennt. Fyrir utan umsóknir um alþjóðlega vernd þá kemur hingað líka fólk sem er bara hreinlega að óska eftir dvalarleyfi og það fólk utan Schengen kemur iðulega sem ferðamenn. Einstaklingur sem kemur kannski inn sem ferðamaður kann að falla mjög fljótt undir lög um útlendinga og alla þá stjórnsýsluferla sem þar er kveðið á, hann hættir á einhverjum tímapunkti að vera ferðamaður.

Ég vildi bara koma þessu að í þessari 1. umræðu um málið og hvetja hv. allsherjar- og menntamálanefnd líka til þess að fá til sín gesti úr dómsmálaráðuneytinu og fá jafnvel umsögn frá dómsmálaráðuneytinu sem hefur haft með höndum að einhverju leyti framkvæmd vegabréfsáritana hingað til.