156. löggjafarþing — 54. fundur,  5. júní 2025.

vegabréfsáritanir.

431. mál
[12:45]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, það er rétt að ráðherra gerir það að tillögu sinni að málið fari til utanríkismálanefndar. En mig langaði að koma hingað upp og þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir hennar góðu og málefnalegu ræðu. Það er athyglisvert að hún virðist hafa trú á samskiptum og samstarfi við önnur ríki varðandi vegabréfsáritanir, það er gaman að því. Mig langaði að tæpa á þeim punktum sem hún kom með, af því að ég tek það fram að það er mín skoðun að þó að málið njóti almennrar velvildar þá verður auðvitað utanríkismálanefnd, eða sú nefnd sem þingsalur ákveður að málið verði sent til, að taka þennan lagabálk og umgangast hann almennilega. Það verður tillaga mín í nefndinni að málið fari í umsagnarferli og við köllum til gesti, sérstaklega vegna þess að það hefur ekki gefist tími fyrir samráð í undirbúningi frumvarpsins.

Svo ég fari í gegnum þetta þá nefndi þingmaðurinn þá spurningu hvort stjórnsýslan muni anna þessum verkefnum og ég held að það sé nauðsynlegt að nefndin fari yfir það. Síðan varðandi samstarfssamninga, það finnst mér líka góður punktur að við ræðum hvort það standi til að hætta þeim alfarið eða hvort það sé áfram rými til þess varðandi hluti eins og höfnunarhlutföll og þannig. Svo verð ég líka að taka undir vangaveltur varðandi skilgreiningu á ferðamanni af því að hérna í upphafi lagafrumvarpsins, 4. gr., segir að ferðamaður sé erlendur ríkisborgari sem þarf vegabréfsáritun til að geta ferðast til Íslands eða annarra aðildarríkja Schengen-svæðisins. Þannig er skilgreiningin á ferðamanni. En síðan segir í 4. gr., um áritunarskyldu, að ferðamaður þurfi að hafa vegabréfsáritun til að mega koma til landsins. Það væri gott að fá aðeins skýringar á þessu í umfjöllun nefndarinnar af því að það eru svona smá hringskilgreiningabragur á þessum greinum, þykir mér.

En ég vildi bara koma upp og árétta að það er fullur hugur innan nefndarinnar á að vinna þetta mál faglega en þó hratt.