156. löggjafarþing — 54. fundur,  5. júní 2025.

vegabréfsáritanir.

431. mál
[12:48]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég biðst forláts. Einhvern veginn fannst mér liggja beint við að þetta mál færi til allsherjar- og menntamálanefndar. En ég þakka hv. þm. Pawel Bartoszek fyrir að sitja hér í þingsal og taka til máls sem formaður hv. utanríkismálanefndar og tek undir með honum varðandi þessa einhvers konar hringröksemdafærslu, hann vísaði hérna í 4. gr., sem síðan aftur vísar í 7. gr. þar sem tilgreindir eru einhverjir tilteknir aðstandendur sem þó hafa dvalarskírteini samkvæmt lögum um útlendinga, þannig að það þarf svolítið að skerpa á þessu. Málefnið er þannig að það á að vera auðvelt að ná almennilega utan um það en það er vont ef mál falla milli skips og bryggju eða menn fara að kasta málum á milli sín í stjórnsýslunni með vísan til þess að það sé ekki skýrt hvar afgreiðsla mála liggi í rauninni. Ég hvet hv. utanríkismálanefnd líka til þess að taka — fyrir utan dómsmálaráðuneytið sem ég tel að geti haft innlegg inn í þetta og auðvitað líka Útlendingastofnun, mér finnst það alveg einboðið vegna þess að Útlendingastofnun hefur mestu reynsluna og innsýn í þessa afgreiðslu. Ég bara óska hv. utanríkismálanefnd góðs gengis á þeim skamma tíma sem hún hefur til þess að fjalla um málið.