156. löggjafarþing — 54. fundur,  5. júní 2025.

réttindagæsla fyrir fatlað fólk.

403. mál
[12:50]
Horfa

Frsm. stjórnsk.- og eftirln. (María Rut Kristinsdóttir) (V):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, nr. 88/2011. Frumvarp þetta er flutt af stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þar sem málið er í nánum tengslum við stofnun Mannréttindastofnunar Íslands. Frumvarpið felur í raun og veru í sér lagatæknilega leiðréttingu á 6. gr. laga um réttindagæslu fyrir fatlað fólk.

Forsaga málsins er sú að þingleg meðferð frumvarps til laga um Mannréttindastofnun Íslands hélst í hendur við þinglega meðferð frumvarps til laga um breytingu á lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk á 154. löggjafarþingi en réttindagæslumenn heyra nú undir Mannréttindastofnun Íslands. Frumvörpin mæltu í nokkrum tilvikum fyrir um breytingar á sömu greinum laga um réttindagæslu fyrir fatlað fólk. Kallaði það á mikla nákvæmnisvinnu en það var gert ráð fyrir að bæði lögin myndu öðlast gildi 1. janúar 2025.

Með h-lið 12. gr. laga um Mannréttindastofnun Íslands var lagt til að 4. mgr. 6. gr. laga um réttindagæslu fyrir fatlað fólk myndi falla brott. Með e-lið 1. gr. laga nr. 83/2024, um breytingu á lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, var svo lagt til að bætt yrði við tveimur málsgreinum á eftir 3. mgr. 6. gr. laganna. Með lögum nr. 138/2024 var síðan gildistöku laga um Mannréttindastofnun Íslands frestað frá 1. janúar til 1. maí 2025. Það láðist hins vegar að fresta ákvæði e-liðar 1. gr. laga nr. 83/2024. Fór því þannig að við ákvæði 6. gr. bættust tvær nýjar málsgreinar á eftir 3. mgr. og færðist upphafleg 4. mgr., sem fella átti brott, til og varð að 6. mgr. 6. gr. laganna. — Ég vona að ég sé ekki búin að missa salinn hér en þetta er sem sagt lagatæknileg breyting.

Þegar lög um Mannréttindastofnun Íslands öðluðust gildi þann 1. maí síðastliðinn virkjaðist umrætt ákvæði um að 4. mgr. 6. gr. skyldi falla brott en það var þá röng 4. mgr. sem féll brott. Við uppfærslu lagasafnsins komu í ljós þessir leiðinlegu misbrestir. Málið var tekið upp í ritstjórn lagasafnsins og var ritstjórnin sammála um að í ljósi þeirrar óvissu og leiðinda sem gætu skapast væri rétt að leggja til þá breytingu sem þetta frumvarp mælir fyrir um. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd tók málið fyrir á sínum fundi og féllst á það að taka málið upp með þessum hætti og var einhuga um að fara þessa leið til að lagfæra þessi lagatæknilegu mistök.

Í raun og veru er málið ekkert flóknara en það. Þetta er, eins og ég segi, einföld leiðrétting á þessum mikilvægu lögum sem styrkja þá um leið stoðir þessarar mikilvægu stofnunar og réttindagæslu fyrir fatlað fólk. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd var, eins og ég sagði áðan, einhuga um að fara þessa leið. Öll nefndin er á málinu, þetta er svokallað nefndarmál og hef ég því lokið máli mínu hér.