156. löggjafarþing — 54. fundur,  5. júní 2025.

sjúkratryggingar.

118. mál
[18:01]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta velferðarnefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008.

Markmið frumvarpsins er m.a. að gera breytingar á þeim ákvæðum laganna sem eiga ekki lengur við og hugtökum sem orðin eru úrelt. Þá eru m.a. lagðar til breytingar sem skýra eiga skyldu sjúkratryggingastofnunarinnar til að byggja ákvörðunartöku á gagnreyndri meðferð og faglegu og hagrænu mati, um styttingu biðtíma eftir sjúkratryggingu og um lögfestingu greiðsluþátttöku fyrir læknismeðferð erlendis vegna biðtíma hér á landi.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Um styttingu biðtíma og niðurfellingu sjúkratrygginga, 6. gr. Nefndin fjallaði um styttingu biðtíma og niðurfellingu sjúkratryggingu. Í 10. gr. laga um sjúkratryggingar er kveðið á um hverjir teljist sjúkratryggðir samkvæmt þeim. Í 1. mgr. segir að sjúkratryggður sé sá sem er búsettur á Íslandi og hefur verið það a.m.k. síðustu sex mánuðina áður en bóta er óskað úr sjúkratryggingum. Verður einstaklingur sjúkratryggður sex mánuðum eftir flutning til landsins og á þá fyrst rétt á greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við heilbrigðisþjónustu, við lyfjakaup og hjálpartæki. Með frumvarpinu er lagt til að biðtíminn verði styttur úr sex mánuðum í þrjá í því skyni að flýta fyrir aðgengi aðfluttra einstaklinga að sjúkratryggingakerfinu, en sex mánaða biðtími þykir óþarflega langur og einstaklingar hafa þurft að bera sjálfir kostnað vegna heilbrigðisþjónustu innan þess tíma.

Með 6. gr. frumvarpsins er einnig lögð til breyting sem ætlað er að veita sjúkratryggingastofnuninni skýrari lagaheimild til að fella niður sjúkratryggingu þeirra einstaklinga sem hafa lögheimili á Íslandi án raunverulegrar búsetu. Er það gert m.a. með öflun gagna frá skattyfirvöldum. Á grundvelli gildandi ákvæðis hefur sjúkratryggingastofnunin heimild til að ákvarða hvort einstaklingur teljist sjúkratryggður hér á landi, en sú heimild takmarkast við fyrirmæli laganna um að búseta sé miðuð við lögheimilisskráningu og hefur stofnunin því ekki haft heimild til að fella niður sjúkratryggingu ef einstaklingur er skráður með lögheimili hér á landi en hefur ekki búsetu. Líkt og fram kemur í minnisblaði frá ráðuneytinu mun ákvörðun stofnunarinnar grundvallast af heildarmati og beri gögn með sér að einstaklingur hefur ekki raunverulega búsetu hér á landi verður sjúkratrygging hans felld niður.

Sú breyting sem er lögð til við ákvæðið er að mati meiri hlutans til bóta. Mikilvægt er að viðeigandi stofnanir hafi skýra lagaheimild til þess að bregðast við þeim tilvikum þegar einstaklingar hafa ekki raunverulega búsetu hér á landi en njóta samt sem áður réttinda samkvæmt lögum um sjúkratryggingar.

Um fyrirframákveðna læknismeðferð erlendis, 9. gr. Þá fjallaði nefndin um ákvæði 9. gr. frumvarpsins þar sem lagt er til að lögfest verði heimild til að samþykkja greiðsluþátttöku vegna fyrirframákveðinna læknismeðferða erlendis, þ.e. í þeim tilvikum þegar sjúkratryggður á ekki kost á meðferð hér á landi innan þeirra tímamarka sem réttlæta má læknisfræðilega með hliðsjón af ástandi og líklegri framvindu sjúkdóms, og er sjúkratryggingastofnuninni þá heimilt að samþykkja greiðsluþátttöku vegna meðferðar í öðru aðildarríki EES.

Við umfjöllun málsins í nefndinni komu fram athugasemdir um að sambærilegt ákvæði væri ekki að finna í lögum um greiðsluþátttöku fyrirframákveðinnar læknismeðferðar sem sjúkratryggður undirgengst hjá einkareknum veitanda heilbrigðisþjónustu hér á landi. Kom m.a. fram að sjúkratryggingastofnunin tæki ekki þátt í kostnaði við slíka þjónustu hér á landi, þrátt fyrir að skemmri biðtími væri eftir henni en þeirri þjónustu sem veitt er erlendis og stofnunin niðurgreiðir. Var hvatt til þess að niðurgreiðsla þjónustu erlendis yrði ekki frekar fest í sessi án þess að hlutur einkarekinna þjónustuaðila verði jafnaður.

Svonefnd biðtímamál eiga sér stoð í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins sem tekin hefur verið upp í EES-samninginn og er lagt til að kveðið verði sérstaklega á um í lögum þann rétt sem felst í 20. gr. hennar. Í minnisblaði frá heilbrigðisráðuneyti til nefndarinnar segir m.a. að ákvæði 9. gr. frumvarpsins feli ekki í sér efnislega breytingu á réttindum sjúkratryggðra til að fá þjónustu erlendis ef biðtími er of langur hér á landi, en sá réttur er til staðar samkvæmt framangreindri reglugerð um samræmingu almannatryggingakerfa. Sú breyting sem lögð er til er til þess fallin að auka skýrleika. Þá segir í minnisblaðinu að sjúkratryggingastofnunin hafi lagt fram tillögur til ráðherra um að samið verði við innlenda aðila ef fjöldi umsókna um aðgerðir erlendis er stöðugur og ekki horfur á því að bið eftir þjónustu styttist. Biðtímaregla 9. gr. frumvarpsins um heimild til að sækja heilbrigðisþjónustu til annarra landa sé undanþága frá meginreglu og myndi breyting á því fyrirkomulagi draga úr möguleikum til þess að halda útgjöldum heilbrigðisþjónustu innan fjárlaga og rýra möguleika til markvissrar forgangsröðunar þjónustu. Telur meiri hlutinn með vísan til framangreinds ekki forsendur til þess að leggja til breytingar á ákvæði 9. gr frumvarpsins.

Nefndin fjallaði að auki um miðlægan lyfjagreiðslugrunn og miðlun gagna. Samkvæmt 12. gr. frumvarpsins er lagt til að skýrt verði nánar hvaða upplýsingar skuli færa í lyfjagreiðslugrunn og tiltekið verði hvernig aðgangur að gagnagrunninum skuli veittur og að skyldur notenda verði skýrðar. Þá er lagt til að við ákvæðið bætist vísun til lyfjalaga til að tryggja afhendingu gagna þar sem þau eru nauðsynleg svo að sjúkratryggingastofnunin geti tryggt rétta afgreiðslu við útgáfu lyfjaskírteina og við framkvæmd lyfjagreiðsluþátttökukerfisins.

Í umsögn embættis landlæknis komu fram sjónarmið um að sá gagnagrunnur skarist á við lyfjagagnagrunn embættis landlæknis og að ætlunin sé að afrita lyfjagagnagrunn embættis landlæknis inn í gagnagrunn Sjúkratrygginga. Þá var á það bent að lyfjalög heimiluðu miðlun upplýsinga frá embættinu til Sjúkratrygginga og að hægt væri að komast hjá því að byggja upp tvo sambærilega gagnagrunna. Í umsögn Persónuverndar eru auk þess gerðar athugasemdir við þessa tilhögun og kemur fram í umsögn stofnunarinnar að forðast ætti skráningu upplýsinga á fleiri en einum stað að þarflausu.

Í minnisblaði frá ráðuneytinu til nefndarinnar er leitast við að svara framangreindum athugasemdum. Þar kemur fram að bæði tilgangur söfnunar og skráning upplýsinga í gegnum gagnagrunnana sé ólíkur eftir því hvort um er ræða vinnslu hjá Sjúkratryggingum eða embætti landlæknis og eru það m.a. ástæðurnar fyrir því að lagt er til að heimilt verði að starfrækja tvo gagnagrunna. Þá eiga við sjónarmið um aðskilnað og upplýsingaöryggi, rétta skráningu og söfnun. Því telur meiri hlutinn ekki forsendur til þess að leggja til breytingar á 12. gr. frumvarpsins hvað þetta varðar.

Meiri hlutinn leggur til breytingu á gildistökuákvæði frumvarpsins, þ.e. að lögin taki gildi 1. nóvember 2025 í stað 1. september 2025 líkt og gert er ráð fyrir í frumvarpinu svo að svigrúm gefist til undirbúnings við framkvæmd laganna. Þá eru lagðar til minni háttar eða lagatæknilegar breytingar sem þarfnast ekki sérstakrar umfjöllunar.

Að framansögðu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.

Undir meirihlutaálit hv. velferðarnefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Kristján Þórður Snæbjarnarson, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, Aðalsteinn Leifsson og Sigurjón Þórðarson.

Frú forseti. Þetta mál hlaut góða umfjöllun í nefnd og mun verða til mikilla bóta, sérstaklega við styttingu þessa biðtíma, og ég fagna því að það komist í gegn.