156. löggjafarþing — 54. fundur,  5. júní 2025.

heilbrigðisþjónusta og málefni aldraðra.

288. mál
[19:23]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Jónína Björk Óskarsdóttir) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta velferðarnefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu og lögum um málefni aldraðra.

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, og lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999. Frumvarpinu er ætlað að festa í lög breytta ábyrgðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga hvað varðar fjármögnun vegna uppbyggingar hjúkrunarheimila.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Með frumvarpinu er lagt til að 15% greiðsluþátttaka sveitarfélaga í kostnaði við byggingu og búnað hjúkrunarheimila falli niður og færist alfarið til ríkisins. Mun ríkið þá framvegis bera ábyrgð á því að afla húsnæðis undir þá starfsemi sem tilgreind er í 1. gr. frumvarpsins. Með þeim breytingum sem lagðar eru til verður vikið frá fyrirkomulagi að gerð sé krafa um að sveitarfélög taki þátt í byggingu hjúkrunarheimila sem nemur að lágmarki 15% af stofnkostnaði. Með frumvarpinu er auk þess lagt til að sveitarfélögum verði heimilt að innheimta gatnagerðargjöld af lóðum undir hjúkrunarheimili. Auk þess er lagt til að samhliða breytingum á ábyrgðarskiptingu vegna uppbyggingar hjúkrunarheimila skuli afskrifa og yfirfæra eignarhlut sveitarfélaga í fasteignum hjúkrunarheimila til ríkisins sem muni alfarið annast og kosta viðhald og endurbætur á viðkomandi fasteign. Yfirfærsla á eignarhlut sveitarfélaga samkvæmt 1. mgr. nær aðeins til hjúkrunarheimila sem eru í rekstri og sameiginlegri eigu ríkis og sveitarfélaga og skal henni lokið eigi síðar en 1. janúar 2026.

Nefndinni barst umsögn frá Snæfellsbæ um málið þar sem m.a. kemur fram að ekki sé skýrt tekið fram í frumvarpinu um útfærslu þar sem sveitarfélög eiga stærri eignarhlut en 15%. Í skýringum við 2. gr. frumvarpsins kemur fram að ganga skuli frá yfirfærslu einstakra eigna eigi síðar en 1. janúar 2026, sem felur í sér að aukinn tími gefst til að ganga endanlega frá afsali og öðru því tengdu vegna þeirra eignarhluta sem færast til ríkisins. Gert sé ráð fyrir því að stýrihópur með fulltrúum ríkis og sveitarfélaga fái það hlutverk að fara nánar yfir hvaða eignarhlutir sveitarfélaga í hjúkrunarheimilum færist yfir í samræmi við ákvæðið. Meiri hlutinn bendir á að í þeirri vinnu er gengið út frá því að þar sem sameiginlegt eignarhald er til staðar muni það færast yfir til ríkisins að einfalda verka- og ábyrgðarskiptingu. Sérstaklega þarf að fara yfir vafamál sem kunna að vera uppi á einstökum stöðum sem taka mið af því hvernig þjónusta hefur verið byggð upp á hverjum stað fyrir sig. Verður í þeirri vinnu m.a. horft til þess hvort hjúkrunarheimili sé í sameiginlegri eigu og rekstri. Meiri hlutinn beinir því til ráðuneytisins að huga sérstaklega að framangreindu.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti hv. velferðarnefndar til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Undir álit meiri hluta nefndarinnar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn: Jón Gnarr, Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir, Eydís Ásbjörnsdóttir og Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir.