156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Störf þingsins.

[10:40]
Horfa

Eydís Ásbjörnsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég verð að bregðast við máli hv. þm. Stefáns Vagns Stefánssonar sem hér hefur stigið fram af miklum ákafa í yfirlýsingum um að uppbyggingu verknámsskóla sé slaufað. Það er einfaldlega rangt. Hann fer með rangt mál. Nú hefur annar hv. þingmaður Framsóknarflokksins tekið undir þann málflutning. Líkt og kemur skýrt fram í fjáraukalögum, og kom skýrt fram í svörum hæstv. mennta- og barnamálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum í gær, þá er um að ræða hliðrun fjárheimilda milli ára. Ástæðan er sú að framkvæmdir eru ekki komnar á það stig að unnt sé að ráðstafa fjármagni nú þegar. Fjármagnið er og verður áfram til staðar og verkefnin halda áfram.

Það vekur athygli að hv. þingmaður var sjálfur í ríkisstjórn þegar þessi verkefni voru kynnt og ákveðin en þá var ekki staðið við þau með fjárhagslegum stuðningi. Engin fjárhagsleg vissa var fyrir hendi þrátt fyrir hátíðlegar undirskriftir viljayfirlýsinga vítt og breitt um landið, oftar en ekki í aðdraganda kosninga. Það er óábyrg stjórnsýsla að ferðast um landið með lekan penna, skrifa undir skjöl og vekja vonir án þess að fjármunir séu tryggðir. Nú hefur ný verkstjórn tekið við og mun vinna þessi verkefni af ábyrgð með raunhæfum áætlunum og því fjármagni sem þarf til. Það er ekki ábyrg nálgun að búa til óvissu og ótta með upphrópunum í þingsal, sérstaklega þegar litið er til þess að hv. þingmaður var formaður fjárlaganefndar Alþingis árin 2021–2024 þegar málin hefðu getað verið tryggð í gegnum fjárlög. En það var ekki gert, bara alls ekki. Í stað þess að veitast að núverandi hæstv. mennta- og barnamálaráðherra, sem vinnur þetta af yfirvegun og festu, hefði verið nær fyrir hv. þingmann að líta í eigin barm og rýna í ákvarðanir og ábyrgð þeirra sem áður sátu við borðið.

Við skulum halda áfram með ábyrgð og alvöru að byggja upp verknám á Íslandi. Það er ein undirstaða atvinnulífs okkar til framtíðar sem þar liggur undir. (Gripið fram í: Heyr. heyr.)