156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Störf þingsins.

[10:48]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að efla neytendavernd. Það er fagnaðarefni en kemur til af nauðsyn. Það skiptir máli fyrir fjölmörg heimili í landinu og þeirra buddu. Ítrekað höfum við fengið fréttir um að neytendur þurfi að borga hærra verð án þess að það sé rökstutt nægilega vel. Hversu oft höfum við t.d. heyrt dæmi frá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda um að lækkun á heimsmarkaðsverði á eldsneyti skili sér seint til neytenda eða stundum hreinlega aldrei? Seðlabankastjóri lagðist á árarnar með FÍB í lok maí þegar hann benti á að styrking krónunnar og lægra heimsmarkaðsverð hefði ekki skilað sér til neytenda og hann ítrekaði þetta í viðtali á Rás 2 í morgun. Svipaða sögu er að segja af matvælaverði. Það hefur hækkað í hverjum einasta mánuði undanfarið samkvæmt verðlagseftirliti ASÍ. Nautakjöt hefur hækkað mest eða um 20% á ársgrundvelli. Þar á bæ skilja menn ekkert í þessum hækkunum þar sem afkoma verslana er almennt séð góð. Verð á lambakjöti hefur líka hækkað. Þrátt fyrir að almenningi hafi verið talin trú um að það að kippa samkeppnislögum úr sambandi í búvörulögum ætti að skila neytendum skaplegra verði þá er raunin er ekki sú.

Í ljósi þess vil ég benda á að hæstv. atvinnuvegaráðherra, Hanna Katrín Friðriksson, hefur komið á fót sérstöku markaðs- og neytendateymi á vegum atvinnuvegaráðuneytisins. Verkefni teymisins er að vakta og greina þróun vísitölu neysluverðs, undirliggjandi áhrifaþætti og miðla reglulegum upplýsingum um þá þætti. Teymið starfar með hagsmuni neytenda að leiðarljósi og er einnig hluti af aðgerðum stjórnvalda gegn verðbólgu og verðlagshækkunum umfram almenna þróun. Út frá neytendavernd og verðlagsþróun er brýnt að stjórnvöld fylgist náið með þróun vísitölu neysluverðs, m.a. gagnvart þróun íslensku krónunnar, og hafi tól og tæki til að greina aðstæður að baki hækkunum á vísitölunni og undirliggjandi áhrifaþætti. Þetta gerir stjórnvöldum og ekki síst neytendum kleift að fylgjast betur með þróuninni og veita nauðsynlegt aðhald með verðhækkunum. Ekki er vanþörf á.