Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í gær fór fram hér í þingsal sérstök umræða um nýsköpun í heilbrigðisþjónustu og einkarekstur. Málshefjandi var hv. þm. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og hæstv. heilbrigðisráðherra Alma Möller var til andsvara. Umræðan var mjög góð, umræða sem ég hafði því miður ekki tök á að taka þátt í. Mig langar því að nota tækifærið og leggja orð í belg og benda á nokkra mikilvæga þætti sem varða velferðartækni.
Velferðarráðuneytið hóf mikilvæga vegferð á þessu sviði á árunum 2014/2015 með tveimur ráðstefnum og mótun stefnu í velferðartækni, eða fyrir um tíu árum. Fleiri fundir og ráðstefnur fylgdu svo í kjölfarið og er skemmst að minnast ráðstefnu Icepharma sem bar heitið Snjallar lausnir á mönnunarvanda í heilbrigðiskerfinu, sem haldin var í byrjun þessa árs.
Mig langar að nefna í þessu samhengi að til eru þrjár skýrslur um kostnaðar- og verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga í þjónustu við fatlað fólk sem gefa vísbendingar um stöðuna og hvernig hugsanlega megi bregðast við henni. Þar er m.a. bent á að breytinga er þörf á þeim sviðum er lúta að viðhorfum, skipulagi þjónustu, ferlum í þjónustu og þróun í velferðartækni, svo að dæmi séu tekin.
Mig langar líka að vekja athygli á hugmyndum sem fram koma í hefti rannsóknastofnunar í Kaupmannahöfn um framtíðarlausnir í heilbrigðismálum til 2030. Þessum hugmyndum hefur verið haldið á lofti í umræðunni meðal stefnusmiða og annarra þeirra sem láta sig þessi mál varða á Norðurlöndunum.
Frú forseti. Við náum ekki bara hagræðingu með innleiðingu velferðartækni heldur getum við líka létt undir með starfsfólki sem oft vinnur við mjög erfiðar og krefjandi aðstæður. Skýrslur og ráðstefnur þar sem fram koma nýjar hugmyndir geta verið mikilvægar en þær duga skammt einar og sér. Við eigum mikið af öflugu fólki til að koma þessum hugmyndum í framkvæmd. Áfram gakk. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)