ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar.
Virðulegur forseti. Nú höfum við fengið fréttir af ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar fyrir næsta fiskveiðiár sem hefst 1. september þar sem ráðgjöf um þorskstofninn lækkar úr 213.000 tonnum í 203.000 tonn. Það eru 10.000 tonn sem hverfa. Það er sama og aukningin sem er fyrirhuguð í strandveiðum á þessu fiskveiðiári, algerlega ábyrgðarlaust. Það er gert ráð fyrir að viðmiðunarstofn þorsks muni dragast enn meira saman á næstu árum þannig að við erum að nálgast það lágmark sem við höfum farið í þegar við settum fiskveiðistjórnarkerfið. Árgangur 2021 kemur inn í veiðistofninn. Hann er á næsta ári sá slakasti í átta ár. Vöxtur árganganna 2019 til 2021, sem bera uppi núna viðmiðunarstofninn eða veiðistofninn, er mjög hægur vegna loðnubrests og alvarlegs ástands loðnustofns. Þetta á svo sem ekki að koma á óvart. Þetta hefur, fyrir alla sem þekkja til, legið í loftinu en eru óþægilegar fréttir. Það er auðvitað galið, virðulegur forseti, að við skulum vera hér með þessa atvinnugrein undir hnífnum við (Forseti hringir.) þessar alvarlegu aðstæður sem eru á þessum markaði. Ríkisstjórnin verður að fara að horfast í augu við þann raunveruleika að við erum að tala um undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar. Þetta getur ekki gengið, svona vinnubrögð.
(Forseti (BHar): Forseti biður hv. þingmenn að taka tillit til þess að það er takmarkaður tími undir þessum lið.)