156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar.

[11:32]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Forseti. Mig langar að ræða hérna það sem hefur verið í gangi hér í þinginu sérstaklega varðandi þetta frumvarp um strandveiðar. Þar var verið að fara umfram ráðleggingar Hafrannsóknastofnunar, umfram ráðleggingar. Við vitum ekki alveg hvar þetta endar, þetta mál, endar þetta í 5, 10, 15 eða 20.000 tonnum yfir ráðleggingum Hafrannsóknastofnunar? Og við erum að tala um ráðleggingar okkar bestu vísindamanna.

Frú forseti. Svo berast af því fréttir að það er búið að minnka höfuðstólinn í þorskaflanum. Það er búið að lækka hann um 10.000 tonn, ráðgjöf frá Hafró. Það væri náttúrlega samkvæmt ríkisstjórninni að hunsa þetta og ekkert hugsa um þetta en fyrir almenning í landinu, hann þekkir það að ef við göngum á höfuðstólinn þá minnka vextirnir til framtíðar.

Frú forseti. Við þurfum að taka þetta mál af dagskrá og ræða þetta enn þá betur og koma því í einhvern farveg til framtíðarheilla fyrir Íslendinga og þorskstofninn.